RSS áskrift

Veiði útlendinga hér yrði á valdi Íslendinga

08.02.2007 Höfundur: Fréttablaðið Flokkar: Sjávarútvegsmál Engar athugasemdir


Eina leiðin fyrir erlendar útgerðir að fá að veiða í íslenskri lögsögu, ef Ísland gerðist aðili að Evrópusambandinu og sameiginlegri sjávarútvegsstefnu þess, væri að íslensk stjórnvöld ákveddu að ráðstafa veiðiheimildum til erlendrar útgerðar. Þetta sagði dr. Michael Köhler, ráðgjafi sjávarútvegsstjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í svari við fyrirspurn á morgunverðarfundi um hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB á Hótel Borg í gær.

„Gengi Ísland í ESB og yrði aðili að sameiginlegu sjávar-útvegsstefnunni sé ég aðeins einn möguleika á að aðrir en Íslendingar fengju að veiða í íslensku lögsögunni, og það er ef íslensk stjórnvöld ákveddu það. Segjum að íslenskur útgerðarmaður skyldi ákveða að hætta útgerð og snúa sér að öðru. Þá væri það á valdi stjórnvalda að útdeila veiðiheimildum hans til hollenskrar útgerðar, til dæmis,” sagði Köhler.

Hann tók einnig fram, að aðild að Evrópusambandinu myndi heldur ekki breyta neinu um íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið. Það sé bara heildarkvótinn sem sé ákveðinn á yfirþjóðlega stiginu og síðan sé það á valdi íslenskra stjórnvalda hvernig hún ráðstafaði honum í sinni lögsögu. Veiðieftirlit væri líka á könnu íslenskra stjórnvalda, það þyrfti bara að uppfylla grundvallarreglur sem um það gilda í nafni sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar.

„Reglan um hlutfallslegan stöðugleika er slík grundvallarregla að sameiginlega sjávar-útvegsstefnan væri nánast óhugsandi án hennar,” sagði Köhler, en þar sem íslenskar útgerðir eru þær einu sem samkvæmt þeirri reglu teldust hafa veiðireynslu í íslensku lögsögunni yrðu þær líka þær einu sem hefðu tilkall til að veiða þar.

Að morgunverðarfundinum stóðu Evrópunefnd forsætisráðherra og sendiskrifstofa framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Ósló. Fundinn setti Einar K. Guðfinnsson sjávar-útvegsráðherra, en hann er jafnframt fulltrúi í Evrópunefndinni.

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is