Þann 4. desember 2008 birtist leiðari í MBL þar sem höfundur fjallar um nauðsyn þess að Ísland taki upp nýjan gjaldmiðil. Þar segir meðal annars:
,, Ísland þarf nýjan gjaldmiðil, þótt hann fáist ekki strax. Nærtækasti kosturinn er evran, sem Ísland gæti fengið einhverjum árum eftir inngöngu í Evrópusambandið. Strax eftir inngöngu í ESB gæti Ísland hins vegar átt kost á þátttöku í myntsamstarfi sambandsins, ERM II, sem fæli í sér stuðning Seðlabanka Evrópu við gengi krónunnar.
Yfirlýsing um að Ísland stefni að ESB-aðild og upptöku evru myndi strax virka í þá átt að styrkja tiltrú umheimsins á íslenzku efnahagslífi. Krónan myndi njóta þess. Þannig er það í raun forsenda þess að krónan hjari næstu árin, að taka ákvörðun um evruna.
Flestir hljóta hins vegar að vera farnir að sjá að áframhaldandi líf með krónunni er óbærilegt fyrir íslenzk fyrirtæki og almenning og útheimtir hömlur af því tagi sem Alþingi hefur samþykkt.”
Evrópusamtökin.

Hver er þín skoðun?