RSS áskrift

Í átt að Evrópustefnu (MBL)

05.03.2009 Höfundur: Flokkar: Almennar greinar um ESB Engar athugasemdir

Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur vakið talsverða athygli undanfarið. Öllu hljóðara hefur verið um aðra nefnd flokksins, Evrópunefndina. Hún var komin á fremsta hlunn með að skila af sér tillögum til landsfundar, þegar honum var frestað þar til síðar í þessum mánuði. Ekkert bólar enn á tillögunum.

Þó er Evrópustefna Sjálfstæðisflokksins sá þáttur í stefnu hans sem einna helzt þarf endurskoðunar við. Það blasir við öllum eftir fjármálahrunið – að minnsta kosti öllum sem vilja að Ísland fái í framtíðinni nothæfan gjaldmiðil – og þeir eru ófáir í Sjálfstæðisflokknum eins og öðrum flokkum.

Ólíkar skoðanir eru á Evrópumálunum innan Sjálfstæðisflokksins. En kyrrstaða, óbreytt stefna, er varla til þess fallin að efla vígstöðu flokksins fyrir komandi kosningar. Slík afstaða myndi bæði fæla frá flokknum fylgi og fækka möguleikum hans við stjórnarmyndun eftir kosningar. Á landsfundinum hlýtur að verða gerð einhver málamiðlun í Evrópumálunum.

Bjarni Benediktsson alþingismaður, sem augljóslega nýtur mikils stuðnings í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins, er byrjaður að fikra sig í átt að slíkri málamiðlun. Á fundi Evrópunefndar flokksins fyrr á árinu talaði hann fyrir því að sjálfstæðismenn reyndu að ná samstöðu við aðra flokka um samningsmarkmið í aðildarviðræðum við ESB. Aðildarsamningur yrði síðan lagður fyrir þjóðina í allsherjaratkvæðagreiðslu.

Bjarni talaði sömuleiðis fyrir því að í aðildarviðræður yrði farið af varfærni og með ströngum skilyrðum, t.d. um yfirráð yfir auðlindum þjóðarinnar. Umboð frá landsfundi yrði „að gera flokksforustunni kleift að taka heilshugar þátt í samningaviðræðum sem kunna að leiða til ESB-aðildar á grundvelli tiltekinna samningsmarkmiða“. Bjarni benti líka á að slíkt umboð mætti ekki verða þannig úr garði gert að „sá sveigjanleiki sem nauðsynlegur er til að leiða megi flóknar samningaviðræður til lykta sé ekki fyrir hendi“ og minnti á að samningsniðurstöðunni gæti þjóðin hafnað, eins og Norðmenn hefðu gert tvívegis.
Þetta er skynsamleg afstaða.

Í viðtali við sjónvarp mbl.is í fyrradag ítrekaði Bjarni að umboð til forystu Sjálfstæðisflokksins þyrfti að vera opið, en taldi jafnframt að hagsmunum Íslands væri „bezt borgið á grundvelli EES-samningsins“.

Sá, sem ætlar sér að fara í aðildarviðræður við ESB með því hugarfari að hagsmunum Íslands sé engu að síður bezt borgið utan þess, nær varla fram aðildarsamningi, sem þjóðin sættir sig við. Þeir sem á annað borð vilja skoða ESB-aðild hljóta að gera það vegna þess að þeir telja að aðildarsamningur, þar sem hagsmunum Íslands væri vel til haga haldið, væri betri en óbreytt ástand.

Leiðari MBL, 5.3.2009

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is