RSS áskrift

Einkennileg ummæli dr. Kenneth Rogoff

16.03.2009 Höfundur: Guðmundur Gunnarsson Flokkar: Greinar um Evruna Engar athugasemdir

ÞAU voru harla sérkennileg ummæli dr. Kenneth Rogoff um upptöku evru í viðtalsþætti í sjónvarpinu hjá Boga Ágústssyni þriðjudaginn 3. mars sl. Hann tók það fram að hann þekkti lítið til íslensks efnahagslífs, en gaf samt út margskonar yfirlýsingar. Fyrrv. ráðherra, Guðni Ágústsson, mærir Kenneth þrátt fyrir þetta fyrir gott og þarft innlegg í umræðuna. Það er þekkt og fyrrv. ráðherra ætti að vera vel kunnugt að ef við hefðum verið með evru væri verðbólga um 3-4%, engin verðtryggingu og vextir á húsnæðislánum um 4% og í viðskiptum um 4-5%. Fyrirtækin með eðlileg viðskipti í nothæfum gjaldmiðli og ekki væru hér gjaldeyrishöft.
Kostnaður af krónunni er óheyrilegur; fyrir bankahrun áætluðu sérfæðingar að við greiddum að jafnaði 3-3,5% hærri vexti vegna þess að við byggjum við litla og óstöðuga mynt. Slíkir aukavextir kosta okkur 120-130 milljarða króna á ársgrundvelli. Nú eftir hrunið þegar krónan hefur fallið um ríflega 80% má gera ráð fyrir að þessi vaxtamunur verði enn meiri – trúlega yfir 5%. Þá er reikningurinn farinn að nálgast 200 milljarða króna. Þetta jafngildir hvorki meira né minna en 25% af öllum launum í landinu! Það gefur auga leið að þessi kostnaður leggst á almenning í formi lægri launa, hærra verðlags, hærri skatta og/eða lægra þjónustustigs hins opinbera. Einnig má benda á fall krónunnar og hækkun verðlags fyrir heimili og innflutt aðföng. Gengi krónunnar var ríflega 80% veikara í janúar á þessu ári en á sama tíma í fyrra og innkaupsverð innfluttra vara hefur hækkað í takt við það. Þá höfðu laun í janúar hækkað um 7,5% á síðustu tólf mánuðum, greidd húsaleiga skv. vísitölu neysluverðs hækkað um 27% og almennt verðlag um ríflega 18% á sama tímabili.

Málflutningur Rogoffs er hreint út sagt ótrúlegur, augljóslega hefði fall heimila og fyrirtækja ekki komið til með sambærilegum hætti. Það hefði komið krísa, en við framangreindar aðstæður væri töluvert annað að eiga við lausn hennar. Það sjáum við í öðrum löndum innan evrusvæðisins.

Það er ekki boðlegt að Sjónvarp allra landsmanna birti viðtal við mann sem er sett fram af jafnmikilli vanþekkingu og um leið villandi fyrir lífsnauðsynlega umræðu. Það er aftur á móti skiljanlegt að ráðherra skuli mæra þetta þar sem hann hefur beitt sér í að koma í veg fyrir að almennir launamenn fái þá kjarabót sem hlýst af inngöngu í ESB og upptöku evru.

Höfundur er formaður Rafiðnaðarsambandsins.

MBL, 14.3.2009

 

 

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is