RSS áskrift

Með hræðsluna að vopni

11.05.2009 Höfundur: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Flokkar: Almennar greinar um ESB Ein athugasemd

ESB vill taka af okkur sjálfstæðið og fullveldið, það vill taka af okkur fiskinn og orkuna. Ísland verður hjáróma og áhrifalaus nýlenda í ESB, Ísland hefur ekkert að gera við Evruna. ESB vill innlima Ísland, landbúnaðurinn hrynur ef Ísland gengur í ESB, Ísland verður ,,fylki í öðru ríki.” Svo segja andstæðingar ESB.

 

Það er verið að hræða Íslendinga, með ESB, Evrópusambandinu. Andstæðingar ESB-aðildar (og aðildarviðræðna líka!), sjá rautt þegar þeir heyra orðið og mála gjarnan þá mynd af ESB að það sé einskonar hrægammur, sem bíði þess eins að ræna okkur og rupla, eins og víkingar af gamla skólanum. Fátt er hinsvegar sem styður þessa skoðun: Hefur ESB tekið yfir olíulindir Breta? Nei. Skóga Finnlands, járngrýti Svíþjóðar? Nei. Sjávarútveg Möltu. Nei. Og Ísland verður aldrei ,,fylki í öðru ríki,” einfaldlega vegna þess að ESB er ekki ríki, heldur samband sjálfstæðra og fullvalda aðildarríkja.

 

Það eru einfaldlega ekki hagsmunir ESB að hegða sér með þeim hætti sem andstæðingar þess segja það gera. ESB hegðar sér heldur ekki þannig. Það er andstætt eðli ESB, sem m.a. gengur út að frið, viðskipti, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi. Andstæðingar ESB tala t.d. lítið um jafnréttismálin, mannréttindamál og þá staðreynd að ESB er helsti fjárveitandi á sviði þróunarsðstoðar. ESB hefur t.d. veitt miklu fjármagni í uppbyggingu á Gaza, eftir ,,aðgerðir” Ísraelsmanna á síðasta ári. Einnig veitti ESB tugum milljarða íslenskra króna til uppbyggingar eftir jarðskjálftana á Ítalíu í byrjun apríl.

 

Orðfæri andstæðinga ESB og aðildar Íslands er oft á tíðum mjög merkilegt. Tökum orðið innlimun, en í fjölmiðlum hafa birst greinar þar sem fullyrt er að ESB vilji ,,innlima” Ísland. Hvað felst í orðinu innlimun? Adolf Hitler innlimaði Austurríki árið 1938 í ,,forleik” hans að seinni heimsstyrjöld. Hinn grimmi einsræðisherra Sovétríkjanna, Jósef Stalín, innlimaði Eystrasaltslöndin (Eistland, Lettland og Litháen) árið 1940 með hervaldi. Þarmeð hófst áratuga kúgun þessara þjóða.

 

Dettur einhverjum heilvita manni í hug að ESB ætli að innlima Ísland? Þvílík fjarstæða. ESB er ekki einu sinni með her, til að byrja með. Hvernig ætti ESB að innlima Ísland? Málflutningur af þessu tagi dæmir sig sjálfur og er einungis til þess fallinn að hræða fólk og draga upp mynd af ESB sem einhverri grýlu eða samansafn af vondu fólki með illar áætlanir í ætt við þá tvo náunga sem ég nefndi hér að ofan.

 

Eystrasaltslöndin losnuðu undan járnhæl kommúnisma í byrjuna níunda áratugar síðustu aldar.  Eftir að hafa losnað undan raunverulegri innlimun notuðu þau nýfengið frelsi til þess að sækja um aðild að ESB, sem fullvalda og sjálfstæð ríki. Og eru þar nú innanborðs, sem fullgildir aðilar.

 

Göran Persson , fyrrum forsætisráðherra Svía, sem sjáfur leiddi Svía út úr bankakreppu á svipuðum tíma og Eystrasaltsrikin urður frjáls, skrifaði eitt sinn í bók að ,,sá sem skuldar er ekki frjáls.” Þar átti hann við að skuldir binda menn á klafa.

 

Íslendingar glíma nú við mikinn vanda og miklar skuldir, m.a. vegna gjaldmiðilshruns.

Aðildarviðræður og aðild að ESB munu senda þau skilaboð til umheimsins um að landið ætli að verða eðlilegur hluti af hinni efnahagslegu og pólitísku þróun sem átt hefur sér stað í Evrópu.

 

Íslendingar eiga skilið, og rétt á; stöðugleika, nothæfum gjaldmiðli, vera lausir við hávaxtaokur og verðbólgu (þó vissulega sé hún að minnka um þessar mundir), sem hefur verið krónískt vandamál hér á landi. Hlutir af þessu tagi eru sjálfsögð mannréttindi. Fyrir fjölskyldur, fyrirtæki og komandi kynslóðir. Aðild að ESB er mikilvægur hluti af lausninni.

 

Við getum ekki farið hrædd inn í framtíðina! Margir andstæðingar ESB vilja greinilega að við leggjum þannig í þá ferð, sjá ekkert jákvætt við ESB og nota því hræðsluáróður sem sitt helsta vopn. En það vopn bítur ekki til lengdar.

 

Höfundur er stjórnmálafræðingur, M.A. í A-Evrópufræðum og situr í stjórn Evrópusamtakanna.

MBL, 11.5.09

 

Athugasemdir

  1. JBL segir:

    Þetta sögðu bankastjóranir og eigendur bankanna líka á sínum tíma um fína fjármálakerfið okkar. Allt saman hræðsluáróður í gagnrýnendum kerfisins (í þessu tilfelli ESB) og ekkert að marka. Sennilega bara öfund líka! Við sjáum svo hvernig fór.

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is