Í fréttatilkynningu frá Alþjóðamálastofnun HÍ segir:
Miðvikudaginn 9. september heldur Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, erindi um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsóknina.
Fundurinn fer fram í aðalsal Háskóla Íslands, frá kl. 10.30 til 11.30. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, opnar fundinn og fundarstjóri er Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Hver er þín skoðun?