Evrópusamtökin verða með fundi á Akureyri á fimmtudaginn, 16.10 og á Húsavík á föstudaginn, 17.10. Fundurinn á Akureyri verður í formi námsskeiðs/fræðsluerindis.
Frummælandi á báðum fundum verður Jón Sigurðsson lektor við Háskólann í Reykjavík, fyrrum seðlabankastjóri og iðnaðarráðherra. Fundurinn á Akureyri verður á Hótel KEA og hefst kl.17.00 á fimmtudag. Fundurinn á Húsavík verður hins vegar á föstudag kl.12.00 og verður með hefðbundnu hádegisverðarsniði.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í síma 699 2522 eða í netfangi evropa@evropa.is
Andrés er formaður Evrópusamtakanna og verður fundarstjóri á þessum fundum.
(Mynd: www.pressan.is)

Hver er þín skoðun?