RSS áskrift

Reynsla Möltu af ESB rædd í Kornhlöðunni

21.10.2009 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Ágæta áhugafólk um Evrópumál, Evrópusamtökin og Rannsóknasetur um smáríki við Háskóla Íslands standa fyrir opnum fundi um Möltu og Evrópusambandið.

Fundurinn verður í Kornhlöðunni (bakvið Lækjarbrekkku í Bankastræti 2), þriðjudaginn 27.október kl. 12.00.  Boðið upp á súpu og brauð.

Frummælendur eru tveir sérfræðingar frá Möltu sem hafa mikla reynslu af samskiptum við Evrópusambandið; Dr. Simin Busutil (mynd) og Dr. Roderic Pace, stjórnmálafræðiprófessor við Möltuháskóla.

Busuttill er Evrópuþingmaður og var í forsvari fyrir upplýsingamiðstöð um Evrópumál í aðildarviðræðum Möltu og ESB. Hann er talinn hafa staðið sig með eindæmum vel og t.a.m. komu Maltverjar mjög vel út úr könnun um þekkingu á ESB sem talið er að megi rekja til starfa miðstöðvarinnar. Professor Pace er stjórnmálafræðiprófessor við Háskólann á Möltu og hefur m.a. kennt við sumarskólann Háskóla Íslands. Þeir unnu báðir í samninganefnd Möltu á sínum tíma.

Dagskráin er svona:

Malta and the EU: Expectations and Experience
Malta og Evrópusambandið: Væntingar og reynsla

The Influence of a Small New EU Member State
Dr. Simon Busuttil, Evrópuþingmaður  

Adapting to the EU: The Case of Malta
Roderick Pace, stjórnmálafræðiprófessor við Möltuháskóla

Fundarstjóri er Hanna Katrín Friðriksson, MBA.

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is