RSS áskrift

Kostir og gallar ESB aðildar: Sjónarhorn Íra og Breta

03.11.2009 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Hádegisfundur Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki.:

Kostir og gallar ESB aðildar: Frá sjónarhorni Írlands og Bretlands

Miðvikudaginn, 4. nóvember frá kl. 12:00 til 13:00 í Lögbergi 103

       Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki standa fyrir opnum fundi með Dr. Andrew Cottey, og Jean Monnet, prófessor í Evrópufræðum við University College Cork á Írlandi.

Cottey hefur starfað hjá International Institute for Strategic Studies og Friðarrannsóknarstofnuninni í Stokkhólmi (SIPRI). Hann er sérfræðingur í alþjóðasamskiptum, öryggis- og varnarmálum og evrópskum stjórnmálum og hefur gefið út margar rannsóknargreinar á þessum sviðum. Bók hans “Security in the New Europe” er notuð sem kennslubók í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Íslands.

       Cottey mun fjalla um eigin afstöðu til kosti og galla Evrópusambandsaðildar fyrir ríki. Hann er breskur ríkisborgari sem hefur búið um árabil á Írlandi og hefur þar af leiðandi haft góð tök á að skoða málefnið frá sjónarhorni ríkja af mismunandi stærðargráðu og ekki síst út frá því hvaða áhrif stærðarmunurinn kann að hafa á afstöðu fólks til ESB aðildarinnar.

       Alyson Bailes, aðjunkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, er fundarstjóri.

       Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir.  

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is