STUTTU fyrir jól birtist grein eftir Brynju Björgu Halldórsdóttur, stjórnarmann í Heimssýn, í Morgunblaðinu þar sem hún mælir gegn aðild að ESB. Ég svaraði greininni og benti þar á ýmsar rangfærslur í henni, aðallega með því að vitna í reglur Evrópusambandsins og niðurstöður rannsóknarskýrslna.
Í greininni »Upplýst þjóð segir nei við ESB« sem birtist í Morgunblaðinu þann 7. janúar sl. bregst Brynja við því með því að saka mig um hortugheit. Í framhaldinu fer hún yfir nokkur atriði í grein minni og ljóst er af þeim texta að Brynja á pólitískan frama vísan kjósi hún að fara þá leið. Deila má um hvort pólitíkusar séu best til þess fallnir að fræða þjóðina um mikilvæg mál. Þeir freistast oft til að reyna að móta skoðanir fólks að sínum eigin með pólitískum leikjum í stað þess að treysta fólki til að mynda sínar eigin skoðanir og því miður hefur það verið áberandi frá báðum hliðum í ESB-umræðunni. Í grein Brynju má finna nokkur dæmi um algeng pólitísk brögð sem rétt er að vara sig á og bendi ég á þau hér.
Í hinni upphaflegu grein sinni hélt Brynja því fram að útlendingar myndu eignast allan fiskinn í sjónum umhverfis Ísland við inngöngu í ESB. Ég benti henni á regluna um hlutfallslegan stöðugleika sem tryggir að við höldum yfirráðum á fiskistofnum í íslenskri lögsögu. Brynja vitnar þá í grænbók ESB sem mælir með endurskoðun á þessari reglu og leiðir að því líkur að hún verði afnumin.
Ef grænbókin er lesin kemur í ljós að þetta er vegna þess að ákveðnir aðilar hafa fundið leiðir í kringum núverandi reglu og því er mælt með að henni verði breytt eða að önnur komi í staðinn til að tryggja betur að fiskveiðiréttindi haldist hjá viðkomandi þjóð. Þetta gefur því ekki tilefni til að óttast að fiskimið okkar fyllist af spænskum togurum. Að vitna í skýrslu sem fáir hafa lesið og taka málsgrein þaðan úr samhengi á þennan hátt er bæði villandi og óábyrgt en einnig vinsælt pólitískt »trikk«.
Næst gerir Brynja lítið úr því að matvælaverð lækki um 20% við inngöngu. Með smá leik að tölum kemst hún að þeirri niðurstöðu að þetta myndi nánast engu máli skipta fyrir heimilin. Í pólitík eru talnaleikir oft notaðir til að villa um fyrir fólki. Yfirleitt er þeim svarað með öðrum talnaleik sem bendir til gagnstæðrar niðurstöðu. Ég ætla þó að sleppa því og segi aðeins að hver verður að gera upp við sig hvort 20% lækkun á matvælaverði sé raunverulegur kostur eður ei.
Brynja hélt því fram að smáþjóð gæti ekki náð góðum samningum við ESB. Ég benti henni þá á samninga Möltu og Eistlands sem þykja hagstæðir og mikil ánægja er með. Brynja stekkur upp á nef sér við þetta og telur upp ýmsar staðreyndir um sjávarútveg Möltu en það virðast vera stöðluð viðbrögð Heimssýnarfólks þegar samningur Möltu kemur upp í umræðunni. Þetta eru áhugaverðar staðreyndir en koma málinu ekkert við. Ég sagði nefnilega ekki að Malta hefði náð samningi sem hentaði Íslendingum vel heldur Maltverjum. Malta og Eistland eru dæmi um að smáþjóðir geta vel staðið vörð um sína hagsmuni í samningaviðræðum og ástæða er til að ætla að Íslendingar geti það einnig ef samninganefnd okkar vinnur sína vinnu. Að breyta um umræðuefni eins og Brynja gerir hér er það sem ritstjóri Morgunblaðsins kallar smjörklípu.
Brynja »óttast að innganga í ESB gæti kostað okkur yfirráð yfir auðlindum okkar«. Rök hennar fyrir því eru þau að við fáum svo margt gott frá ESB að þeir bara hljóti að vilja fá eitthvað til baka. Þetta virðist algerlega úr lausu lofti gripið og ESB hefur aldrei tekið yfir auðlindir aðildarríkjanna. Hér stundar Brynja pólitík af gamla skólanum sem kallast einfaldlega hræðsluáróður.
Í titli greinar sinnar fullyrðir Brynja að upplýst þjóð muni hafna aðild að ESB. Mér þykir alltaf broslegt þegar pólitíkusar segja þjóðinni að ef hún væri bara upplýst um málið þá væri hún örugglega sammála þeim. Ég ætla ekki að taka jafnstórt upp í mig og Brynja en ég er þó vongóður um að ef fólk aflar sér upplýsinga og er á varðbergi gagnvart rangfærslum og pólitískum brögðum í umræðunni muni margir komast að sömu niðurstöðu og ég: Að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan ESB en utan þess.

Hver er þín skoðun?