RSS áskrift

Á Ísland vini í Evrópu?

25.01.2010 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Paal Frisvoldt, formaður norsku Evrópusamtakanna og ráðgjafi í umhverfismálum, mun halda fyrirlestur á vegum Evrópusamtakanna og Ungra Evrópusinna laugardaginn 30. janúar n.k. kl.14.30.  Fyrirlesturinn fer fram í sal að Skipholti 50a (sama hús og Gallerí List).

Fyrirlestur hans nefnist ,,Does Iceland have any friends in Europe?” Fyrirlesturinn verður á ensku og er hluti af námsstefnu sem Ungir Evrópusinnar standa fyrir og verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Paal er einn af helstu sérfræðingum Norðmanna á sviði Evrópumál og hefur undanfarin ár einkum starfað að ráðgjafamálum á sviði umhverfismála í Brussel. Paal er afskaplega góður fyrirlesari og gaman að hlusta á hann. Paal var kosinn formaður norsku Evrópusamtakanna á aðalfundi þeirra síðasta sumar.

Við hvetjum því allt áhugafólk um Evrópumál til að mæta á þennan fyrirlestur.

Nánari upplýsingar um Paal eru á þessari heimasíðu.

http://www.thebrusselsoffice.eu/Ourteam/Paal.aspx

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is