Ný samtök, Sjálfstæðir Evrópumenn, verða stofnuð á föstudaginn í Þjómenningarhúsinu, kl. 16.30. Auglýsingar frá hópnum, birtast í MBL og Fréttablaðinu í dag. Í henni segir: Tilgangur félagsins er að standa vörð um sjálfstæði Íslands, áframhaldandi samvinnu Íslands við vestrænar lýðræðisþjóðir og stuðla að efnahagslegum og pólitísk-um stöðugleika, trausti, einstaklings- og atvinnufrelsi og frjálsum viðskiptum.
Til þess að ná þessum markmiðum vill félagið stuðla að hagstæðum samningi um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem styðja tilgang félagsins.
Ávörp:
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður
Jónas Haralz, hagfræðingur
Katrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur
Gunnar Þórðarson, fv. útgerðarmaður Ísarði
Fundarstjóri:
Ragnhildur Helgadóttir, fv. ráðherra

11.02.2010 klukkan 10:17
-Til hamingju með samtökin!
Vildi aðeins benda á meinlega stafsetningarvillu: þó að ,,Þjómenningarhús” sé e.t.v. réttnefni á eins konar sagna-/þjóðminjasafni eða kokkteilstofu, er þó réttara að rita heiti hússins með ð-i, þ.e. ,,Þjóðmenningarhús”!
Bkv,
ÞVJ
14.02.2010 klukkan 15:23
Hvernig get ég gengið í samtökin með formlegum hætti? Er flokksbundinn Sjálfstæðismaður frá 16 ára aldri og eindreginn stuðningsmaður aðildar að Evrópusambandinu frá 1990.
13.04.2010 klukkan 19:25
Kæru félagar!
Ég hefi ekki fengið tp um það sem er að gerast, þrátt fyrir að ég gaf upp tp á stofnfundinum.
hcjons@gmail.com
BLESS,
Hreggviður.