Fróðleikur á fimmtudegi. Eins og nafnið bendir til eru þetta fundir sem verða á hverjum fimmtudegi og hefjast alltaf kl. 17 í Skipholti 50a þar sem við höfum aðstöðu. Á hverjum fundi er fyrirlesari eða málshefjandi. Á meðfylgjandi slóð eru upplýsingar um fimm fyrstu fundina okkar. Við hvetjum ykkur til þess að sækja þessi fundi til þess að njóta fróðleiks en ekki síður til þess að hittast og spjalla. Fyrsti fundurinn er 25. mars og er þar ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur en þá fjallar prófessor um fullveldi Íslands og aðild að ESB. Ragnhildur er einn mesti fræðimaður landsins á þessu sviði og er formaður samningshóps Íslands við Evrópusambandið um dóms- og innanríkismál. Sjáumst á fimmtudaginn. Evrópusamtökin og STERKARA ÍSLAND - þjóð meðal þjóðaSkipholti 50a, 105 Reykjavík
Fyrirlestur um Ísland, fullveldismál og ESB
21.03.2010 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir
Skyldar fréttir
-
Stóra myndin
22.11.2011
Evrópumálin snúast um framtíðina. Þau snúast um hvort við Íslendingar ætlum að taka skrefið fram á við og treysta samband okkar við önnur sjálfstæð ríki innan vébanda Evrópusambandsins, eða hvort við ætlum að standa í stað og láta EES-samninginn duga. Sjá til, vona það besta og gera enn eina tilraun með sjálfstæða örmynt á sameiginlegum [...]
-
Ólöf og aðhaldsreglur ESB
14.08.2011
Það væri að æra óstöðugan að leiðrétta allar þær rangfærslur og misskilning sem á sér stað í Evrópuumræðunni á Íslandi þessa dagana. Ég var búinn að ákveða að elta ekki ólar við alla þá vitleysu sem ratar þar á prent. Þegar málsmetandi þingmenn eins og Ólöf Norðdal fara hins vegar með [...]
-
Hlutverk RÚV og ESB-málið
17.05.2011
Andrés Pétursson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifa
Í lok júní hefjast hinar eignlegu aðildarviðræður Íslands og ESB. Þá er lokið svokallaðri rýnivinnu, en í henni felst að löggjöf Íslands og ESB er borin saman á öllum sviðum. Því má segja að þá hefjist í raun nýr kafli í þessu ferli, sem hófst með umsókn Íslands að [...] -
Evrópudagurinn er í dag, 9.maí
08.05.2011
Evrópusamtökin óska vinum Evrópu til hamingju með Evrópudaginn (Schumann-daginn), sem er í dag, 9. maí.
Evrópudagurinn er rakinn til svokallaðrar Schuman yfirlýsingar frá árinu 1950. Þann dag klukkan 18:00 lýsti Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands, því yfir að samrunaferli Evrópu væri hafið.
Yfirlýsingin leiddi til undirritunar Parísarsáttmálans um kola- og stálbandalag Evrópu um það bil ári síðar. [...] -
Ný stjórn Evrópusamtakanna
06.05.2011
Ný stjórn Evrópusamtakanna var kjörin á aðalfundi þeirra, sem haldinn var 6.maí síðastliðinn. Hún lítur svona út:
Andrés Pétursson, fjármálastjóri, formaður
Sigrún Gísladóttir,fyrrum skólastjóri, Garðabæ
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, stjórnmálafræðingur
G.Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi
Einar Kárason, rithöfundur
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi

Hver er þín skoðun?