RSS áskrift

ESB og heilaþvotturinn!!

09.04.2010 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Skemmtiinnslag fréttatíma RÚV-Sjónvarps í gærkvöldi átti formaður sauðfjárbænda, Sindri Sigurgeirsson. Verður þetta að teljast gott dæmi um leiftrandi húmor formannsins, en hann fullyrðir að ESB stundi skipulegan heilaþvott hér á landi og sakaði hann ESB um að draga upp glansmynd af sjálfu sér í ferðum sem bændum hafi verið boðið í.

Þetta á Sindri að hafa heyrt frá mönnum sem hann þekki og svo framvegis (honum var s.s. ekki boðið, eða??). Þá verður einnig að segjast eins og er að nálgun fréttamanns RÚV var einstaklega ógagnrýnin, Sindri þurfti ekki að svara neinum óþægilegum eða óvæntum spurningum Gísla Einarssonar.

Þetta er gott dæmi um hinn fáránlega raunveruleika sem við blasir í Evrópuumræðunni, þar sem bull sem þetta ræður ríkjum. Að sjálfsögðu er ESB ekki að reyna að heilaþvo einn eða neinn, það eru orð Sindra. En auðvitað dregur ESB fram og reynir að sýna það jákvæða við sambandið! En datt bændunum ekki í hug að spyrja um hið neikvæða. Eða gengu þeir bara hljóðir um sali?

Allir vita, líka við Evrópusinnar að ESB er ekki fullkomið, frekar en önnur mannanna verk! En það skaðar ekkert að spyrja!

Myndi Sigurgeir t.d. byrja kynningu á Bændasamtökum Íslands á því að segja: ,,Við erum ríkisrekin samtök, sem þiggjum um 10 milljarða á ári frá íslenskum skattgreiðendum.” Myndi hann ekki frekar reyna að draga upp á mynd að íslenskur landbúnaður væri umhverfisvænn og þekktur fyrir gæðaframleiðslu og að íslendingar elskuðu lambakjöt, rjóma, smjör og skyr!

Svo dregur hann að sjálfsögðu fram hina “sviðnu-jörð”-senu, þar sem hann segir að um 35-40% verðfall, verði á afurðum bænda við inngöngu í ESB. Hins vegar er ekkert sem segir að svo verði.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa ræðu Sigurgeirs frá því í morgun, þar sem “sýn” hans á Evrópumálin kemur frem geta gert það hér. Í henni segir hann m.a.:

Á þessum aldarfjórðungi sem liðinn er frá stofnun samtakanna hefur margt breyst. Samdráttur hefur orðið í framleiðslu um 27% og birgðastaða er nú 40% lægri en hún var á sama tíma 1985. Á þessum tíma hefur mikil neyslubreyting á sér stað í þjóðfélaginu og neysla á lambakjöti farið úr 41 kg á íbúa í 23 kg. Á sama tíma hefur heildarkjötneysla aukist úr 66 í 85 kg á mann. Niðurstaðan er því sú að lambakjöt hefur látið í minni pokann fyrir hvíta kjötinu, þar sem neysla á svínakjöti hefur aukist um 230% og neysla á alifuglakjöti um 300%. Við hljótum að vera sammála um að við þetta verður ekki unað. Þessa þróun verður að stoppa með öllum tiltækum ráðum. Þó vel hafi tekist til í útflutningi er okkar heimamarkaður gríðarlega mikilvægur og þurfum við því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva undanhald kindakjöts á íslenskum kjötmarkaði.”

(…”með öllum tiltækum ráðum.” Hvað þýðir það?)

Bloggari bendir á að allar þessar breytingar gerðust án nokkurrar aðkomu ESB! ESB er s.s. ekki skúrkurinn hér, heldur er þetta þróun sem er óumflýjanleg. Til dæmis borðar fólk nú meira af pasta (sem ekki var til hér á landi fyrir nokkrum áratugum) og grænmeti.

Fréttamyndband RÚV hér 

 

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is