RSS áskrift

Evrópudagurinn í dag: Til hamingju, Evrópusinnar!

09.05.2010 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Evrópudagurinn er í dag, 9.maí. Evrópusamtökin óska öllum Evrópusinnum til hamingju með daginn.

Ársins 2010 verður e.t.v. minnst sem ,,Grikklandsársins” og ekki að ástæðulausu. Grikkir glíma við mikinn vanda, en þetta er ekki bara próf fyrir þá, heldur einnig Evrópu og ESB.

Vandamál Grikkja eru einnig dæmi um þann samvinnuvilja meðal Evrópuþjóða. Aðildarlönd ESB hafa ákveðið að koma Grikkjum til aðstoðar, sum með semingi.

Auðvelt væri að segja ,,látum Grikki sigla lönd og leið, þeir geta bara bjargað sér sjálfir.” Þetta er hinsvegar hættuleg afstaða.

Sem betur fer er ESB til staðar, ekki er erfitt að sjá fyrir sér hvernig staðan væri í Evrópu ef öll ríki Evrópu væru ein síns liðs að glíma við þau vandamá sem þau standa frammi fyrir.

Líklegt er að and-lýðræðisleg öfl myndu nota það sér til framdráttar. Við höfum ,,góð” dæmi um það frá Evrópu hvað efnahagslegt og pólitískt öngþveiti getur leitt af sér. Evrópusambandið er einmitt svar gegn því, enda eru mannréttindi eitt af leiðarljósum sambandsins.

Sú þróun sem nú er í gangi í Ungverjalandi er einnig dæmi um það sem mögulega getur gerst. Þar hafa þjóðernissinnaðir og fasískir flokkar fengið um 70% þingsæta í nýafstöðnum kosningum.

Svona þróun má ekki endurtaka sig í Evrópu!

Ísland er Evrópuþjóð, við tilheyrum evrópskum menningararfi, uppruni okkar er í Evrópu. Við erum sem stendur með annan fótinn inni, hinn úti og áhrif okkar á þróun mála í Evrópu eru hverfandi.

Við getum hinsvegar orðið hluti af þessari þróun með fullri aðild að ESB. Orðið ,,eðlilegur samstarfsfélagi,” en ekki einhverskonar utangátta aðili, sem bara tekur á móti, en ekkert gefur af sér.

Við getum það hinsvegar á mörgum sviðum þar sem þekking okkar er framúrskarandi, dæmi; sjávarútvegsmál og orkumál.

Enn og aftur Evrópusinnar, til hamingju með daginn og látum til okkar taka!

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is