Samtök ungra bænda birtu auglýsingar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu föstudaginn 28.maí þar sem varað við “Evrópuher,“ en sá her er ekki til. Um er að ræða grófa bjögun á staðreyndum.
Auglýsingarnar voru stórar og því dýrar og í þeim eru hlutir sem alls ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum, til dæmis að íslenskir ríkisborgarar geti átt það á hættu að vera kvaddir til herskyldu. Evrópusamtökin fordæma “auglýsingamennsku“ af þessu tagi.
Bændasamtök Íslands hafa lýst því yfir að þau muni ekki ræða ESB-málið.
Samtök ungra bænda fylgja þeirri stefnumörkun.
Íslenskir bændur búa við mikla ríkisstyrki, en alls fá íslenskir bændur um 10 milljarða á ári beint frá skattgreiðendum. Sjálf Bændasamtökin fengu á fjárlögum 2010 rúmlega 500 milljónir til rekstrarins.
Í ljós þess að bændur vilja ekki ræða ESB-málið og njóta jafnmikils ríkisstuðnings og raun ber vitni (einn sá hæsti í heimi!) hlýtur að vakna sú spurning hvernig að fjármögnun þessara auglýsinga var staðið. Því spyrjum við formann Samtaka ungra bænda, Helga H. Hauksson:
1-Hvaðan kemur það fé, sem þessar auglýsingar voru greiddar með?
2-Hafa Samtök ungra bænda fengið fé frá Bændasamtökum Íslands til að fjármagna auglýsingar sem þessar?
3-Hyggjast samtökin standa fyrir fleiri auglýsingum af þessum toga?

Hver er þín skoðun?