RSS áskrift

Opið bréf (númer tvö) til Samtaka ungra bænda

05.06.2010 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Fyrir viku síðan birtu Samtök ungra bænda(SUB) flennistórar auglýsingar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu, þar sem þau vara við svokölluðum Evrópuher. Slíkur her er ekki til og engin áform eru uppi um stofnun hans.

Í kjölfar auglýsinganna birtu Evrópusamtokin á vefsíðum sínum opið bréf til SUB, þar sem m.a. var spurt út í það hvernig þessar auglýsingar voru fjármagnaðar.

Þeir sem fylgjast með landbúnaðarmálum vita að íslenskur landbúnaður er styrktur um 10 milljarða á ári af skattfé Íslendinga. Bændasamtökin sjálf fá rúmlega 500 milljónir á ári til eigin reksturs.
Því stendur enn eftir þessi spurning: Voru þessar auglýsingar greiddar með almannafé?

Evrópusamtökunum þætti vænt um að fá svar við þessari spurningu, því að okkar mati er það ólíðandi, sé slíkt raunin. Þá er um að ræða alvarlega misnotkun á opinberu fé að mati Evrópusamtakanna.

Þessari spurningu er hérmeð komið á framfæri við stjórn Samtaka ungra bænda.

En það er von Evrópusamtakanna að Samtök ungra bænda taki í framhaldinu þátt í málefnalegri umræðu um málefni ESB, sem er eitt stærsta málið sem íslenskt samfélag þarf að taka afstöðu til á komandi misserum.

Ekki síst þarf að ræða slæma stöðu íslenskra bænda, sem að eigin mati eru þeir aðilar sem halda uppi matvælaöryggi þjóðarinnar. Er mikið öryggi fólgið í því að íslenskir bændur séu illa staddir fjárhagslega og geti t.d. ekki staðið í eðlilegum fjárfestingum eins og fréttir undanfarna daga hafa gefið til kynna?

Stjórn Evrópusamtakanna:

Andrés Pétursson,
Anna Kristinsdóttir
Ari Skúlason
Björn Friðfinnson
Ingólfur Margeirsson
Guðmundur Hallgrímsson
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
Jónas Tryggvi Jóhannsson
Pétur Snæbjörnsson

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is