Möltubúinn Joe Borg heldur erindi á vegum Sterkara Íslands laugardaginn 25. september. Joe Borg var utanríkisráðherra Möltu 1999 – 2004 og leiddi aðildarviðræður Möltu við ESB. Um leið og Malta varð aðili að ESB 2004 tók hann sæti í framkvæmdastjórn ESB og gengdi starfi sjávarútvegsstjóra þess þar til í byrjun þessa árs.
Það er mikill fengur að komu Joe Borg. Hann hefur víðtæka reynslu af samningum smáríkis um aðild að ESB og einnig reynslu af þátttöku smáríkis í ESB. Þá þekkir hann vel til þess hvernig kaupin gerast á eyrinni í samstarfinu í Brussel sem einn af æðstu embættismönnum ESB.
Joe Borg er tæplega sextugur lögfræðingur. Hann hefur kennt við Möltuháskóla og sinnt margvíslegum ráðgjafastörfum tengdum fyrirtækjalöggjöf. Hann hefur verið virkur í stjórnmálum á Möltu um árabil.
Joe Borg heldur erindi sitt í Háskólanum í Reykjavík, Öskjuhlíð, laugardaginn 25. september kl. 11 í salnum Bellatrix. Fundurinn er öllum opinn.
Eftir erindið verða fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri er Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur.
Enginn áhugamaður um Evrópumál ætti að láta þetta erindi fram hjá sér fara
Wikipedia um Joe Borg
Leið Möltu að ESB

Hver er þín skoðun?