Í tilkynningu á www.sterkaraisland.is kemur fram:
Ísland í ESB – að vera eða vera ekki – frjálst val sjálfstæðrar þjóðar
Iceland in EU – to be or not to be – the free choice of a sovereign people
Pat Cox er forseti European Movement International. Hann sat á írska þinginu 1989 – 1994 og síðar á Evrópuþinginu 1989-2004 þar sem hann var forseti 2002- -2004. Hann stýrði já-hreyfingunni á Írlandi þegar Lissabon sáttmálinn var samþykktur.
Pat Cox er frábær ræðumaður og hefur mikla reynslu. Hann var sjónvarpsmaður á Írlandi og síðar þingmaður þar í landi. Þá var hann kosinn á Evrópuþingið sem einn af þingmönnum írsku þjóðarinnar.
Síðar varð hann æðsti embættismaður Evrópuþingsins þegar hann var kjörinn forseti þess. Pat Cox er nú formaður evrópsku Evrópusamtakanna – European Movement.
Pat Cox hefur mikla yfirsýn yfir stöðu smáríkis í Evrópusambandinu og gjörþekkir störf Evrópuþingsins.
Enginn ætti að láta Erindi Pat Cox fram hjá sér fara.
Erindið verður í hátíðarsal Háskóla Íslands miðvikudaginn 20. október kl. 13.
Fundurinn er öllum opinn.
Eftir erindið verða fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri er Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ

Hver er þín skoðun?