RSS áskrift

„Vér einir vitum“: Sr. Þórir Stephensen

22.11.2010 Höfundur: Flokkar: Almennar greinar um ESB Engar athugasemdir

Fyrirsögn þessarar greinar er tilvitnun í Friðrik 6., einn af okkar gömlu konungum, sem taldi sig þiggja vald sitt milliliðalaust frá Guði. Þá var rætt um breytingar á prentfrelsisákvæðum í Danmörku. Svar konungs, „Vi alene vide,“ kom í veg fyrir aukið frelsi og hefur gjarnan verið notað um þvermóðsku og yfirgang stjórnvalda. Það hefur oft heyrst i þjóðfélagsumræðunni að undanförnu.
Í umfjölluninni um ESB og Sjálfstæðisflokkinn hefur nokkrum sinnum verið að því vikið, að Davíð Oddsson, formaður nefndar þeirrar, er samdi Aldamótaskýrslu Sjálfstæðisflokksins, hafi breytt um skoðun í Evrópumálum. Ummæli hans í skýrslunni eru mörg á þann veg, að þau hefðu getað verið skrifuð af ESB-sinna í dag. En nú er komið annað hljóð í strokkinn. Davíð útskýrir þetta í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 10. júlí sl. Hann segir þar: „Fyrrnefnd skýrsla virðist um margt ágæt, en ekki hefur þó allt það, sem þar var sett fram, staðist tímans tönn.“ Hann segir ennfremur: „ [nú] hafa allar þær upplýsingar sem áður vantaði, komið fram, meðal annars í fjölmörgum samtölum fyrrverandi formanns skýrslunnar …. við menn eins og Delors, Santer og Prodi, sem allir voru formenn framkvæmdastjórnar ESB, auk helstu forystu Evrópuríkja.“
Mér fannst þetta áhugavert, og spurði sjálfan mig, hvað það hefði verið í þessum samtölum, sem hefði haft slík áhrif á okkar hæfileikaríka og baráttuglaða forystumann. Ég bað Davíð sjálfan að vísa mér á heimildir um þessi samtöl. Hann hafnaði beiðni minni og sagði, að um væri að ræða „tugi funda“. Ég leitaði því bæði til forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins um þennan fróðleik. Hjá þeim fundust upplýsingar um sjö fundi Davíðs varðandi þessi mál á árunum 1994 – 2005, sem Morgunblaðið flutti fréttir af. Mér var ekki leyft að sjá gögnin, en ég fékk dagsetningar þessara funda, ásamt fundum Davíðs um önnur mál og nokkurra funda, sem Halldór Ásgrímsson hafði setið, í allt sautján viðburða. Þess vegna gat ég leitað í Morgunblaðinu, sem í flestum tilfellum var fljótt að koma með fréttirnar.
Í frásögn blaðsins kemur ýmislegt fram, bæði með og á móti aðild. Fundirnir eru þó svo fáir, sem fregnir fara af, að þeir gefa enga trausta heildarmynd. Ljóst er hins vegar, að Davíð Oddsson hefur frekar viljað taka mark á úrtölumönnum, en að ganga á lagið hjá þeim, er sýndu sveigjanleika. Því hljóta margir að spyrja sjálfa sig: Getur það verið, að hann hafi ekki viljað leita allra leiða til að efla framtíð þjóðar sinnar? Það er eins og eitthvað sé innra með honum eða í samfélagi hans, sem hindrar hann í láta á það reyna, hve langt við gætum náð í samningum við ESB, þrátt fyrir að öðrum finnist sem heilbrigð skynsemi hljóti að mæla með slíku.
Fréttirnar, sem eru heimildir mínar, hafa þann megingalla, að ég hef ekki fengið að sjá nein frumgögn. Þau sem ráðuneytin geyma eru aðeins einhliða skýrslur Davíðs Oddssonar og þeirra, sem hafa verið ritarar hans. Þau hafa ekki verið borin undir viðmælendur hans og eru því lokuð almenningi. Fréttaflutningur virðist því að mestu kominn frá honum sjálfum beint eða óbeint. Svo eru þetta örfáir fundir, sem frá er sagt, af þeim tugum, sem Davíð tjáði þeim, er þetta ritar, að um væri að ræða.
Það virðist því að langmestu leyti vera Davíð Oddsson einn, sem býr yfir þekkingunni. En hann taldi sig greinilega ekki þurfa að kalla til funda hér heima með þeim, sem hann segir, að hafi myndað skoðun hans og raunar kaffært hans gömlu hugsjónir. Það fór aldrei fram nein alvöru umræða í stærsta stjórnmálaflokki landsins um þessi mál. Ályktanir landsfunda voru yfirleitt samdar fyrirfram. Því verður ekki betur séð, og er reyndar á allra vitorði, að skoðun Davíðs hafi ráðið og hann úrskurðað, að við ættum ekkert erindi inn í ESB. Alvöru umræða um þetta mál hefur aldrei verið á dagskrá í Sjálfstæðisflokknum.
Þá er ekki nema um tvennt að velja fyrir hinn almenna þegn.
Annar kosturinn er að segja: Þökkum fyrir, að okkur hefur verið gefinn þessi snillingur, sem hefur vit fyrir okkur, getur valið það eina rétta fyrir alla. Fylgjum honumHinn kosturinn er að reyna að rifja það upp, að hér ríkir lýðræði, að hér á hver einasti maður sinn heilaga rétt til að kjósa samkvæmt upplýstri samvisku sinni og þeirri sannfæringu sem hún skapar.Enginn getur sagt um það fyrirfram, hvað út úr samningum við ESB kemur. En við eigum rétt á að fá að sjá samning og segja svo okkar álit. Við viljum ekki semja af okkur auðlindirnar, og þá heldur ekki þá dýrmætustu, unga fólkið, sem nú er að flýja land eða vill ekki koma heim frá námi. Við eigum okkar rétt. Davíð Oddsson á hann ekki nema fyrir sig. Honum á ekki að líðast í þessu máli, það sem fyrrum þingmenn hans hafa gantast með, að hann kæmist upp með í þingflokknum á sínum tíma, að sum málin sem hann lagði fram væru annað hvort ekki rædd af flokknum eða þá samþykkt með tveimur atkvæðum gegn 24.
Allir Íslendingar hljóta að vita, að klisjan gamla „Vér einir vitum“ er löngu orðin að nátttrölli í nútímasamfélagi.

MBL, 20.11.2010

Hver er þín skoðun?

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is