Ég er brekkubúi frá Akureyri, að norðan. Nú Reykvíkingur í Grafarvogi. Samt aðallega Íslendingur, í hópi Norðurlandabúa í Evrópu, á vesturhveli jarðar sem snýst um sólu. Þetta er svolítið eins og rússnesk trédúkka (matryoshka) þar sem hver hjúpurinn tekur við af öðrum. Ég er samt alltaf ég.
Í hverju lagi fyrir sig gegnir maður ákveðnu hlutverki og hvert lag gegnir sínu hlutverki. Nákvæmlega hið sama má segja ef horft er til þjóða heimsins og þar með Íslands. Sterk sjálfsmynd á öllum stigum gefur styrk til þess að allir í þessu flókna gangverki sinni sínu þar sem það á við en deili verkefnum og ákvörðunum með öðrum þar sem það á við ef árangur á að nást.
Aðild Íslands að Evrópusambandinu er fullkomlega eðlilegt og rökrétt skref fyrir okkur Íslendinga. Við verðum hvorki meiri né minni við aðildina en við styrkjum okkar eigin stöðu um leið og við styrkjum stöðu ESB og Evrópu. Þannig verðum við sameiginlega betur í stakk búin til að takast á við verkefni dagsins en ekki síður framtíðarinnar, bæði sem Íslendingar og Evrópubúar.
Hvað er brýnna en að tryggja öryggi og frið í álfunni og styrkja mannréttindi? Það er grundvöllur farsældar og hagsældar. Þar hefur ótrúlegur árangur náðst í stuttri sögu Evrópusambandsins frá sex ríkja samstarfi til 27 ríkja samstarfs. Greið viðskipti og stöðugleiki er forsenda góðra lífskjara og öruggra aðdrátta og markaða fyrir útflutning. Það er besta trygginging fyrir gagnkvæmu matvælaöryggi, lyfjaöryggi, orkuöryggi og svo mætti lengi telja.
Aðild að Evrópusambandinu snýst ekki nema að litlu leyti um lausn á brýnum efnahagsvanda okkar. Aðild snýst fyrst og fremst um hvort við viljum skipa okkur í sveit með öðrum Evrópuþjóðum og leggja okkar af mörkum til að skapa okkur öllum hagsæld og farsæld. Aðild snýst um sjálfsmynd okkar og sjálfsvirðingu og hvort við viljum vera þátttakendur eða áhorfendur við að skapa þá heimsmynd sem er í sífelldri endurnýjun og mótun. Heimsmynd þar sem sameiginlegum viðfangsefnum fjölgar sífellt.
Ég er sannfærður um að sjálfsmynd okkar Íslendinga er svo sterk að þegar við íhugum málin þá sjáum við fljótt að með aðild að ESB fáum við stórkostlegt tækifæri til að taka þátt í að móta framtíð Evrópu og um leið heimsins alls. Þá fáum við gullið tækifæri til þess að sýna hvað í okkur býr.
FRBL, 17.3.2011 (birt með góðfúslegu leyfi höfundar).

Hver er þín skoðun?