Evrópusamtökin óska vinum Evrópu til hamingju með Evrópudaginn (Schumann-daginn), sem er í dag, 9. maí.
Evrópudagurinn er rakinn til svokallaðrar Schuman yfirlýsingar frá árinu 1950. Þann dag klukkan 18:00 lýsti Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands, því yfir að samrunaferli Evrópu væri hafið.
Yfirlýsingin leiddi til undirritunar Parísarsáttmálans um kola- og stálbandalag Evrópu um það bil ári síðar. Sex Evrópuþjóðir; Belgía, Frakkland, Holland, Ítalía, Lúxemborg og Þýskaland ákváðu þá að vinna saman að ákveðnum sameiginlegum viðfangsefnum.
Síðan hefur samstarf lýðræðisaflanna í Evrópu verið í sífelldri þróun og mótun og í dag eru 27 lönd í Evrópu aðilar að Evrópusambandinu.
Aðildar- og samningaviðræður Íslands og ESB hefjast fyrir alvöru eftir nokkrar vikur, í lok júní, að lokinni svokallaðri rýnivinnu.

Hver er þín skoðun?