RSS áskrift

ESB – hernaðar- eða mannúðarsamband?

14.07.2010 Höfundur: Sema Erla Serdar Flokkar: Almennar greinar um ESB, Öryggis og friðarmál Ein athugasemd

Andstæðingar Evrópusambandsins og aðildar Íslands að sambandinu hafa nú í nokkurn tíma sagt óhugnanlegar sögur af því sem þeir vilja meina að sé hernaðarbandalag sem muni neyða Íslendinga til þess að senda afkvæmi sín í hinn óhugnanlega Evrópusambandsher ef Ísland verður aðildarríki Evrópusambandsins. Nú fyrir stuttu fengu draugarnir á bak við sögurnar Samtök ungra bænda með sér í lið og fengu þá til þess að birta auglýsingu í fjölmiðlum landsins sem varaði landsmenn við því að aðild að Evrópusambandinu fylgi herskylda fyrir okkur Íslendinga gagnvart hinum „væntanlega Evrópusambandsher“. Þar sem þessar sögur andstæðinga Evrópusambandsins eru álíka sannar og sú að al-Kaída sérhæfi sig í blómaskreytingum ákvað ég að deila með lesendum nokkrum staðreyndum um utanríkis-, öryggis- og varnarmál Evrópusambandsins.

Það var í Maastricht-sáttmálanum, sáttmálanum sem formlega myndaði Evrópusambandið í núverandi mynd, sem fyrst var kveðið á um sameiginlega utanríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það eru utanríkismál enn að langmestu leyti á forræði aðildarríkjanna sem eru langt frá því að tala einni röddu í utanríkismálum en það kom greinilega í ljós í Íraksdeilunni þar sem aðildarríki Evrópusambandsins skiptust í hópa stuðningsmanna innrásinnar í Írak og andstæðinga hennar.

Það verður þó að segjast eins og er að uppi hafa verið raddir um sameinað herlið Evrópuríkja, allt frá því að Winston Churchill viðraði slíkar hugmyndir, til Angelu Merkel, núverandi kanslara Þýskalands. Sú hugmynd hefur þó ekki orðið að veruleika og í raun þykir ansi ólíklegt að svo verði einhvern tímann. Árið 1999 var þó samþykkt að koma á fót sameiginlegri evrópskri viðbragðssveit sem skipuð yrði um 60.000 hermönnum. Hér er alls ekki um sérstaka hersveit Evrópusambandsins að ræða heldur er sveitin skipuð hermönnum úr herjum aðildarríkjanna sem helst eiga að sinna friðargæsluverkefnum. Liðsafli og búnaður er byggður upp á loforðum aðildarríkja um framlög ef til átaka kemur og hvert ríki tekur ákvörðun um hvort það veitir hernaðarlega aðstoð eða annars konar aðstoð og ekkert ríki er skuldbundið til þess að taka þátt í slíkum aðgerðum.

Fyrsta sjálfstæða verkefnið sem Evrópusambandið tók að sér var árið 2003 þegar tekið var yfir verkefni alþjóðalögreglusveita Sameinuðu þjóðanna í Bosníu og Hersegóvínu. Síðan þá hafa verkefnin verið margvísleg, en sem dæmi má nefna aðgerðir á svæðum Vestur-Balkanskaga, í Palestínu, Írak, Darfúr, Georgíu og Úkraínu. Evrópusambandið reynir með þessum aðgerðum að stuðla að útbreiðslu lýðræðis og verndun mannréttinda í heiminum.

Með útbreiðslu lýðræðis og verndun mannréttinda í huga er mikilvægt að nefna þá staðreynd að Evrópusambandið og ríki þess eru langstærstu veitendur þróunaraðstoðar í heiminum. Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram það markmið að vel stæð ríki heims leggi fram 0,7% af landsframleiðslu til þróunarmála en öll þau ríki sem hafa uppfyllt markmið Sameinuðu þjóðanna eru í Evrópu.

Þróunarverkefni Evrópusambandsins ná í dag til allra heimshorna og hinna ýmsu sviða og er þeim meðal annars ætlað að aðstoða þróunarríki við að taka þátt í alþjóðaviðskiptum upp á eigin spýtur. Samkvæmt samkomulagi um fríverslun með vörur aðrar en vopn fellir Evrópusambandið til að mynda einhliða niður tolla af helstu framleiðsluvörum frá fátækustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna en strangar reglur um sjúkdómavarnir og öryggi standa enn í vegi fyrir viðskiptum að einhverju leyti. Þetta er þó allt gert til þess að aðstoða fátækustu ríki heimsins sérstaklega.

Vegna þessara atriða get ég ómögulega skilið hvers vegna andstæðingar Evrópusambandsins og aðildar Íslands eyða öllu sínu púðri í hræðsluáróður sem á sér engar stoðir í veruleikanum, hræðsluáróður um hernaðarbandalag sem við nánari athugun virðist stjórnast af mannúðarsjónarmiðum eins og þróunaraðstoð og lýðræðisumbótum í heiminum, í stað þess að fjalla um þau málefni Evrópusambandsins sem í raun skipta okkur máli og eru sönn. Ég get ekki annað en vonað að einhvern tímann fljótlega verði hægt að ræða staðreyndir málsins á mannamáli og að andstæðingar Evrópusambandsins hætti að segja lygasögur og slappi af í ímyndunarveikinni, en ef ekki get ég að minnsta kosti talist heppin að fá ekki boð á viðburði hjá þeim þar sem mikið er um blómaskreytingar.

MBL, 14.7.2001

Höfundur er formaður Ungra Evrópusinna

ESB er NATÓ okkar tíma

25.03.2008 Höfundur: Svanborg Sigmarsdóttir Flokkar: Öryggis og friðarmál Engar athugasemdir

Erfiðlega tekst að halda krónunni í því horfi að allir séu sáttir. Ýmist er hún of sterk fyrir útflutningsfyrirtækin og ferðaþjónustuna, eða of veik fyrir neytendur og þá sem skulda í erlendri mynt, jafnt fyrirtæki og einstaklinga. Áður en krónan veiktist hafði umræðan um hugsanlega Evrópusambandsaðild snúist frá því að fjalla nánast einvörðungu um yfirráð yfir auðlindum hafsins, í kosti og galla þess að ganga í Evrópska myntbandalagið og taka hér upp evru. Allir virðast hafa misst trúna á íslensku krónuna, því að þeir sem eru á móti aðild tala ekki um að halda í krónuna, heldur á að gera eitthvað annað.

Pólitíska umræðan snýst í raun um aðildina sjálfa, en ekki fiskveiðistjórnun eða mynt. Þeir sem eru fylgjandi eða mótfallnir finna svo sérfræðingarökin til að styðja við mál sitt. Pólitíkin í kringum aðildarumræðuna kemur að stjórnmálaflokkunum, því eins og bent hefur verið á eru þeir í raun klofnir í afstöðu sinni.

Aðeins einn flokkur hefur haft aðild á stefnuskrá sinni. Það er ekki þar með sagt að það sé eining innan hinna flokkanna. Framsóknarflokkurinn, með Alþýðuflokksheilkennið, er margklofinn í harðvítugri baráttu um framtíð flokksins. Ekki eru þar allir á eitt sáttir um stefnu núverandi formanns á vegferð hans til að bjarga flokknum frá mölinni og vinda til baka stefnu fyrrverandi formanns.

Grein formanns og varaformanns Vinstri grænna um samnorræna krónu hefur vakið athygli og er hún dæmi um þá sem eru á móti Evrópusambandinu, en á sama tíma hafa gefist upp á krónunni. Það er ekki úr takti við hugmyndafræði evrópskra vinstri flokka né grænna, að líta til Evrópu, líkt og þýskir græningjar, sem er öflugasti umhverfissinnaflokkur Evrópu, hafa gert. Vinstri græn eru hins vegar í samnorrænu samstarfi, þar sem starfað er með Evrópska vinstriflokknum á Evrópuþinginu í stað Evrópskra græningja.

Frjálslyndir hafa verið mótfallnir Evrópusambandsaðild vegna sjávarútvegsstefnu þeirra. En nú er kominn þingmaður í hópinn sem vill gera sig gildandi og er ekki mótfallinn aðild.

Eins og margoft hefur komið fram er aðild ekki á stefnu Sjálfstæðisflokksins, og því gátu síðustu ríkisstjórnir ekki hafið þá undirbúningsvinnu sem Björn Bjarnason hefur nú talað um að sé nauðsynleg. Á meðan flokkurinn var í samstarfi við Framsóknarflokkinn var öllum ljóst að slíkur undirbúningur strandaði ekki á Halldóri Ásgrímssyni.

Alveg jafn ljóst er að slíkur undirbúningur strandar ekki á Samfylkingunni í dag. Ef aðvörun ráðherra Sjálfstæðisflokks um mögulegan klofning flokka er beint gegn eigin flokki setur það ummæli annarra þingmanna flokksins, um að málið sé ekkert á dagskrá og eigi því ekkert að ræða, í nýtt samhengi. Þá snúast þau ummæli í raun ekki um Evrópusambandið, heldur hvernig best fari að því að verja hagsmuni flokksins og halda honum saman.

Afstaða til erlends samstarfs hefur áður valdið klofningi í íslenskri pólitík, afstaðan til NATÓ. Hvernig bregðast ætti við NATÓ-aðild og veru bandarískra hermanna hér á landi klauf vinstri flokkana og þjóðina alla. Það skyldi þó ekki svo fara að afstaðan til ESB muni frekar valda klofningi til hægri?

Leiðari, Fréttablaðið, 25. mars. 2008 .

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is