RSS áskrift

Aðalfundur Evrópusamtakanna

30.04.2011 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Aðalfundur Evrópusamtakanna verður haldinn að Skipholti 50a fimmtudaginn 5. maí kl.20.00.
Dagskrá:

1. Hefðbundin aðalfundarstörf (skýrsla stjórnar, reikningar og kosning stjórnar).
2. ,,Evrópumaður ársins” útnefningin tilkynnt.
3. ,,Írland og efnhagslífið í Evrópu” Andrea Pappin framkvæmdastjóri írsku Evrópusamtakanna.
4. Önnur mál.
Aðalgestur fundarins verður Andrea Pappin, framkvæmdastjóri írsku Evrópusamtakanna. Hún er ung og kraftmikil kona sem hefur vakið athygli á Írlandi fyrir ferska og nútímalega nálgun á Evrópumálin.
Allt áhugafólk um Evrópumál er velkomið.

Samúðar og baráttukveðjur til Japans

17.03.2011 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Evrópusamtökin senda japönsku þjóðinni samúðarkveðjur vegna þeirra hörmulegu atburða sem nú eiga sér stað í landinu. Orð duga skammt til þess að lýsa því sem japanska þjóðin gengur í gegnum um þessar mundir.

Ísland og Japan hafa átt mikil samskipti í gegnum tíðina á fjöldamörgum sviðum. Og verður svo örugglega áfram.

Evrópusamtökin senda japönsku þjóðinni baráttukveðjur í því mikla starfi sem framundan er.

Opinn fundur: Diana Wallis

28.02.2011 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Opinn fundur verður með Diana Wallis, varaforseta Evrópuþingsins, á vegum Alþjóðamálastofnunar, Rannsóknaseturs um smáríki og Lagastofnunar Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir.

Staður og stund: Miðvikudaginn, 2. mars, frá 12:30-13:30, í stofu 102 á Háskólatorgi

Diana Wallis er Evrópuþingmaður Breta og hefur mikinn áhuga á málefnum norðurslóða. Hún er mjög skemmtillegur ræðumaður og getum við því mælt með þessum fyrirlestri.

Fundað fyrir norðan um Evrópumál

22.02.2011 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Norðlendingar láta ekki sitt eftir liggja í Evrópuumræðunni. Á morgun, miðvikudag 23. febrúar, fer fram fundur Akureyri á vegum bæjarmálafélagsins Pollurinn.

Umræðuefnið er ESB og hagsmunir Eyjafjarðar. Fundurinn fer fram í Deiglunni annað kvöld kl.20.00.

Þar mun Anna Margrét Guðjónsdóttir varaþingmaður fjalla um hagsmuni Norðurlands í Evrópu og Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við HA, fjalla um gjaldmiðilsmál.

Fundarstjóri verður Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi þingmaður og utanríkisráðherra.

Allir velkomnir!

Um völd og áhrif

28.12.2010 Höfundur: Flokkar: Annað efni Engar athugasemdir

Höfundi leiðara Morgunblaðsins hefur orðið tíðrætt um lýðræðishalla Evrópusambandsins. Orð eins og „skrifræðið í Brussel“ og hið „ólýðræðislega bákn“ eru höfundinum einkar hjartfólgin.Staðreyndin er hins vegar sú að Evrópusambandið er metnaðarfyllsta tilraun sem reynd hefur verið til að finna lausn á ýmsum sameiginlegum vandamálum sem ekki verða leyst eingöngu innan landamæra núverandi þjóðríkja. Þar má til dæmis nefna mengun, alþjóðleg glæpastarfsemi og ýmis mál sem tengjast yfirþjóðlegum samgöngum og viðskiptum

En hver er aðalástæðan fyrir því að ekki er meira um beinar kosningar til hinna ýmsu stofnana eða embætta innan Evrópusambandsins til að auka lýðræðið innan sambandsins. Ástæðan er einföld; aðildarlönd Evrópusambandsins hafa ekki verið tilbúin að láta meiri völd til stofnana Evrópusambandsins.

Ég velti því stundum fyrir mér hvort sá sem heldur á pennanum í leiðaraskrifum Morgunblaðsins þekki ekki raunverulegt verklag hinna ýmsu stofnana ESB eða hvort viðkomandi sé svo sannfærður um hið illa innræti Evrópusambandsins að það skuli nota hvert tækifæri til að sverta ímynd þess.

Morgunblaðið taldi sig til dæmis hafa himin höndum tekið þegar Frosti Sigurjónsson framkvæmdastjóri skrifaði grein á bloggsíðu sína fyrir skömmu. Þar heldur Frosti því fram að þungamiðja valds í Evrópusambandinu sé hjá framkvæmdastjórninni og Evrópuþingið sé valdalítið.

Gallinn við þessa framsetningu Frosta er sú að þær forsendur sem hann gefur sér, annaðhvort vegna þekkingarskorts eða vísvitandi rangfærslna, standast ekki. Staðreyndin er sú að valdamiðja Evrópusambandsins er hjá ráðherraráðinu og leiðtogaráðinu þar sem sitja lýðræðislega kjörnir fulltrúar aðildarríkjanna. Evrópuþingið, sem einnig er kosið í beinni kosningu af íbúum ESB landa, hefur síðan smám saman verið að auka völd sín á kostnað Framkvæmdastjórnarinnar.

Lagasetningarferli Evrópusambandsins er nokkuð langt og það getur tekið upp í mörg ár að koma lagasetningu í gegnum Framkvæmdastjórnina, Evrópuþingið og ráðherraráðið. Mjög margir aðilar, bæði Evrópuþingmenn, starfsmenn Framkvæmdastjórnarinnar, hagsmunaaðilar, grasrótarsamtök, þrýstihópar og fleiri, hafa möguleika á því að hafa áhrif á lagagerðina.

Ýmsum finnst ferlið óþarflega langt og flókið en það gefur að minnsta kosti mjög mörgum aðilum tækifæri til að hafa áhrif á endanlega niðurstöðu. Einnig minnkar þetta möguleikana á því að illa unnin lagagerð komist í gegnum þetta ferli.

Morgunblaðið ætti því að fagna en ekki gera lítið úr þeirri kynningu sem í vændum er varðandi Evrópusambandið. Flestir þeir sem talað er við kvarta undan því að þekkja ekki nægjanlega vel til varðandi störf og stefnu ESB.

Allir ættu því að geta sameinast um það að fagna meiri upplýsingum um þetta mikilvæga málefni. Eða óttast Morgunblaðið að Íslendingar geti ekki tekið skynsamlega ákvörðun um tengsl sín við sambandið í ljósi upplýstrar umræðu? (MBL. 28.12.2010)


Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is