RSS áskrift

HUNDALÓGÍK Í ESB-UMRÆÐU

18.02.2011 Höfundur: Andrés Pétursson Flokkar: Almennar greinar um ESB Engar athugasemdir

Sumir einstaklingar virðast halda að með því að endurtaka sömu vitleysuna verði hún á einhvern hátt rétt, sérstaklega ef vitleysan er í ómótstæðilegu samhengi við eigin trúarsannfæringu. Það er erfitt að halda uppi málefnalegum rökræðum þegar menn beita þannig hundalógík.

Nýleg grein Frosta Sigurjónssonar framkvæmdastjóra í Morgunblaðinu um völd og áhrif innan Evrópusambandsins er af þessum toga. Það er reyndar með ólíkindum að einstaklingur, sem lætur mikið til sín taka í umræðu um kosti og galla aðildar að ESB, skuli bera þetta á borð. Öllum sem hafa áhuga á sannleikanum er ljóst að það eru 27 ráðherrar aðildarríkja ESB (allir með lýðræðislegt umboð sinna aðildarríkja) og Evrópuþingið (hver einasti þingmaður kosinn beinni kosningu af borgurum ESB) sem fara með lykilvöld (lagasetningarvald) innan ESB. Í greininni endurtekur Frosti margar af þeim röngu staðhæfingum sem hann hefur þegar haldið fram bæði í ræðu og riti um stofnanir og skipulag Evrópusambandsins. Þar má til dæmis nefna rökleysuna um að það séu nafnlausir embættismenn í Brussel sem taki flestar ákvarðanir en ekki löglega kjörnir fulltrúar þjóðanna. Einnig að Evrópuþingið sé áhrifalaus stofnun og að það sé framkvæmdastjórn ESB sem hafi í raun löggjafarvaldið. Ég ætla ekki að eyða prentsvertu aftur í allt það sem Frosti heldur fram í grein sinni heldur vísa í fyrra svar mitt í grein í Morgunblaðinu og lesa má á heimasíðunni evropa.is.

Frosti eyðir töluverðu púðri í hinn svokallaða lýðræðishalla Evrópusambandsins og dregur af því ákveðnar niðurstöður sem vert er að ræða. Það er rétt að kjörsókn í einstökum löndum er ekki neitt til að hrópa húrra yfir en það má ekki gleyma því að í sumum löndum er kjörsóknin mjög góð. Þar má til dæmis nefna Belgíu og Lúxemborg þar sem kjörsjókn er um 90% og Möltu þar sem kjörsókn er um 80%. Allir þegnar Evrópu hafa hins vegar rétt á því að kjósa, þannig að halda því fram að kjörsókn sé einhlítur mælikvarði á hve mikið lýðræði sé í viðkomandi landi er í besta falli hálfsannleikur. Almenn kjörsókn í Bretlandi er frekar dræm og yfirleitt ekki nema rúmlega 50% þátttaka í almennum þingkosningum. Það þarf því ekki að koma á óvart að þátttaka í Evrópuþingkosningum þar í landi sé líka frekar slök. Sviss er líka gott dæmi um dræma kosningaþátttöku almennings. Í almennum þingkosningum er þátttaka rétt um 40% og í einstaka atkvæðagreiðslum í kantónum fer kjörsókn jafnvel niður fyrir 20%. Samt eru bæði þessi lönd rótgróin lýðræðisríki. Það er því ljóst að kosningaþátttaka er ekki eini mælikvarðinn á lýðræðishefð þjóða.

Oft hafa komið fram tillögur um að auka beint lýðræði í Evrópukosningunum en aðildarlöndin hafa verið mjög treg að láta meiri völd yfir til yfirþjóðlegra stofnana. Núverandi fyrirkomulag er því málamiðlun eins og margt annað í samstarfi ríkja Evrópusambandsins. Að halda því fram að ákvarðanataka í sífellt fleiri málaflokkum færist frá lýðræðislega kjörnum þjóðþingum til embættismanna í Brussel er hreinlega ekki rétt eins og því miður margt annað í þessari grein Frosta. Vonandi er andstæðingum aðildar ekki ofviða að ræða kosti og galla Evrópusambandsins og möguleika almennings til að hafa áhrif á störf og stefnu þess án þess að vera með upphrópanir og rangar eða í besta falli vafasamar fullyrðingar um hvernig fyrirkomulagið er í raun og veru.

MBL, 18.2.2011

Fá bændur samkeppni?

08.02.2011 Höfundur: Ólafur Þ. Stephensen Flokkar: Landbúnaðarmál Engar athugasemdir

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), vakti í síðustu viku hér í Fréttablaðinu máls á fyrirvörum samtakanna við stefnu stjórnvalda í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið, þar sem markmiðið er sagt vera að raska stuðningi við landbúnaðinn sem allra minnst.

Erna benti þannig á að yrði ekki dregið úr hinum gífurlega háu tollum, sem lagðir eru á erlendar búvörur, myndi matarverð ekkert lækka. Engir tollar eru á viðskiptum með vörur á milli ríkja ESB. Í kjölfar aðildar Svíþjóðar og Finnlands að sambandinu fyrir hálfum öðrum áratug lækkaði matarverð umtalsvert. Lækkun matarverðs er hagur greinar á borð við ferðaþjónustuna, sem vill geta boðið ferðamönnum upp á ódýrari mat og er að sjálfsögðu einnig hagur hins almenna neytanda.
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, sagði í Fréttablaðinu á laugardag að tollverndin væri þvert á móti hagsmunamál fyrir neytendur. Án hennar hefðu bændur og aðrir aðilar á markaði hækkað verð til neytenda um sextíu prósent, í takt við hækkanir á innfluttum vörum þegar krónan féll 2008.

Við þessa röksemdafærslu er eitt og annað að athuga. Haraldur gefur sér væntanlega að ef ofurtollanna hefði ekki notið við, hefðu erlendar búvörur náð hér umtalsverðri markaðshlutdeild og veitt innlendri búvöru raunverulega samkeppni. Um leið og þær hefðu hækkað í verði, hefði svigrúm innlendra framleiðenda til að hækka verðið hjá sér aukizt. Þetta getur verið rétt, ef menn horfa á mjög þröngan tímaramma, en um leið er þá horft framhjá þeim hag, sem neytendur hefðu haft til lengri tíma af ódýrum innflutningi og þeirri samkeppni, sem hann hefði veitt innlendri búvöru. Og eins mætti segja að niðurfelling tolla nú gæti tekið til baka umtalsverðan hluta þeirrar kjaraskerðingar, sem neytendur urðu fyrir við fall krónunnar.

Staðreyndin er sú, að landbúnaðurinn er ofverndaðasta atvinnugrein landsins. Lítil sem engin samkeppni er á innanlandsmarkaði, þar sem verðlagi er að hluta til stýrt af hinu opinbera, framleiðendur skipta með sér markaðnum í huggulegheitum og margar kynslóðir landbúnaðarráðherra hafa hunzað tilmæli samkeppnisyfirvalda um að samkeppnislög gildi um landbúnaðinn. Með tollverndinni er síðan séð til þess að atvinnugreinin hefur enga erlenda samkeppni heldur. Þær fáu búvörur, sem fluttar eru inn til landsins, eru með tollum og fleiri viðskiptahindrunum gerðar svo dýrar að þær eru fremur lúxusvara fyrir hina efnameiri en vara, sem getur raunverulega keppt við innlendu framleiðsluna.

Ábendingar Ernu Hauksdóttur draga vel fram það sem flestir ættu að geta talið sjálfsagt, að í aðildarviðræðunum við ESB geta stjórnvöld ekki leyft sér að gæta þröngra hagsmuna landbúnaðarins. Þau verða jafnframt að horfa á hag annarra greina, til dæmis ferðaþjónustunnar, og auðvitað neytenda í landinu. Finnst ríkisstjórninni það annars ekki sjálfsagt?

Leiðari FRBL 7.2.2011

Er Evrópusambandið ólýðræðislegt bákn?

07.02.2011 Höfundur: Andrés Pétursson Flokkar: Almennar greinar um ESB Engar athugasemdir

Margt er skrifað og skrafað um Evrópusambandið. Er það í sjálfu sér vel. Umræðan er nauðsynleg og vaxandi sem einungis er til þess fallið að efla þá upplýsingamiðlun sem fara þarf fram um sambandið og eðli þess.

Í því samhengi er mikilvægt að allir sem að málum koma leitist við að gæta nákvæmni í því sem fram er borið. Fólkið í landinu gerir kröfu til þess. Vonandi mun væntanleg upplýsingamiðlun á vegum Alþingis styrkja þennan þátt.

Því miður verður að segjast að grein Frosta Sigurjónssonar , eins af forystumönnum Nei-hreyfingarinnar á Íslandi, sem nokkuð hefur verið vísað til á sumum vefritum og ber yfirskriftina “Evrópusambandið er ólýðræðislegt bákn”, fellur í þann flokk að vera einstaklega ónákvæm og fara í besta falli frjálslega með staðreyndir. Það má að sjálfsögðu öllum vera ljóst að nákvæmni í þessu sambandi þjónar ekki skoðunum höfundarins.
Til upplýsingar fyrir landsmenn alla þá kýs ég að svara hér lið fyrir lið þeim rangfærslum sem grein Frosta inniheldur:

1. Lagasetning í Evrópusambandinu eru í höndum framkvæmdastjórnarinnar. Þetta er rangt. Lagasetningarvald er í höndum ráðherra 27 aðildarríkja ESB og Evrópuþingsins sem skipað er þingmönnum sem kosnir eru af íbúum aðildarríkja í beinum kosningum. Líkt og er t.d. hér á landi þá ákveða ráðherrarnir 27 og þingið oft og tíðum að heimila framkvæmdastjórn að setja tæknilegar reglur um framkvæmd lagasetningar innan ramma sem ráðherrar og þing hafa sett.
2. Þrískipting valdsins er ekki til staðar. Þetta er rangt. Löggjafarvald er í höndum ráðherraráðs og Evrópuþings, dómsvald í höndum dómsstóla ESB og framkvæmdavald í höndum framkvæmdastjórnar ESB sem stjórnað er af fulltrúum allra aðildarríkjanna.
3. Þingið getur ekki gert breytingar á lagafrumvörpum. Þetta er rangt. Evrópuþingið í takt við vaxandi hlutverk sitt gerir í sífellt vaxandi mæli breytingar á tillögum framkvæmdastjórnar ESB og ráðherraráðsins um nýja löggjöf. Dæmi eru um að þingið setji þessum tveimur stofnunum stólinn fyrir dyrnar. Aðildarríki ESB hafa falið Evrópuþinginu aukin völd í þessu tilliti einmitt til að auka lýðræði í Evrópusamvinnunni.
4. Í Brussel eru flestar ákvarðanir teknar af embættismönnum en ekki lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Embættismenn í Brussel taka þær ákvarðanir sem ráðherraráð og Evrópuþing, lýðræðislega kjörnir fulltrúar aðildarríkjanna, hafa falið þeim að taka. Embættismenn hafa ekki lagasetningarvald.
5. Framkvæmdastjórn ESB lagði fram nýjan sáttmála um Lissabon eftir að kjósendur í Evrópu höfðu hafnað stjórnarskránni. Þetta er rangt. Stjórnarskrársáttmálanum var hafnað í í Frakklandi og Hollandi. Hann kom til atkvæða í meirihluta aðildarríkja, sumsstaðar í þjóðaratkvæði, og var samþykktur. Aðildarríkin (ekki framkvæmdastjórnin) ákváðu síðar að umbreyta stjórnarskrársáttmálanum í nýjan sáttmála sem gekk til atkvæða en var felldur á Írlandi. Ákveðið var í framhaldinu af öllum aðildarríkjum að taka tillit til tilgreindra vandamála sem írskir kjósendur gáfu til kynna og mun sáttmálanum verða breytt til samræmis. Er það ekki einmitt svona sem lýðræðið virkar best; það er komið til móts við vilja kjósenda?
6. Evrópuþingið er áhrifalaust. Það er í raun framkvæmdastjórnin sem hefur löggjafarvaldið. Það er með ólíkindum að einstaklingur sem framarlega stendur í umræðu um kosti og galla aðildar að ESB skuli bera þetta á borð. Það er öllum ljóst sem vilja kynna sér það að það eru 27 ráðherrar aðildarríkja ESB (allir með lýðræðislegt umboð sinna aðildarríkja) og Evrópuþingið (hver einasti þingmaður kosinn beini kosningu af borgurum ESB) sem fara með þetta vald. Framkvæmdastjórn ESB hefur ekkert annað vald en að setja tæknilegar reglur sem ráðherrar og þing hafa falið þeim að setja; líkt og þegar Alþingi felur ráðherrum að setja reglugerðir.

Um sumt má taka undir með Frosta eins og mikilvægi þess að gera ESB enn opnara og auka sem mest áhrif borgara sambandsins á starfsemi þess svo sem með því að geta með auðveldum hætti náð því fram að sambandið taki mál til umfjöllunar. Það á að vera markmið allra aðildarríkja og þeirra ríkja sem sækja um aðild að sambandinu að efla enn frekar lýðræðislega þætti í starfsháttum þess. Það hefur einmitt verið eitt helsta áherslumál Norðurlandanna innan ESB að auka gagnsæi og lýðræði í Evrópusambandinu.

Að lokum skal ítrekuð sú ábyrgð allra sem taka þátt í umræðum um kosti og galla Evrópusambandsins að þeir haldi sig í betri nálægð við sannleikann en Frosti kýs að gera í sinni grein.

MBL, 7.2.2011

Skammgóður vermir og tittlingaskítur

28.01.2011 Höfundur: Jón Steindór Valdimarsson Flokkar: Almennar greinar um ESB Engar athugasemdir

Alla jafna þykir það ljóður á ráði manna að hugsa bara til skamms tíma. Ekki er betra þegar gripið er til ráða sem bæta úr við fyrstu sýn en gera illt verra. Um það er sagt að skammgóður vermir sé að pissa í skó sinn. Þarf sú myndlíking ekki frekari skýringar við.

„Því hefur verið haldið fram að íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum … en leysi vandræði sín með þvi að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“ segir í Innansveitarkroníku Halldórs Laxness.

Skynsemi og yfirvegun

Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu í júlí 2009. Evrópusambandið samþykkti að taka upp viðræður í júní 2010. Allt gengur samkvæmt áætlun og er búist við að svokallaðri rýnivinnu ljúki í vor og þá hefjist eiginlegar samningaviðræður sem gæti lokið á næstu misserum.

Maður skyldi ætla að ákvörðun Alþingis yrði fylgt eftir af þunga, samningaleiðin gengin til enda og samningurinn falinn þjóðinni til samþykktar eða synjunar. Á þeim tíma og ekki síst þegar samningur lægi fyrir yrði rætt um kjarna máls og hagsmuni Íslands til langs tíma. Þá fyrst gætum við leitt málið til lykta með skynsamlegum og yfirveguðum hætti. Því miður er þessu ekki aldeilis að heilsa. Hér verður tvennt nefnt.

Krónan

Ekki er langt síðan flestir voru þeirrar skoðunar að íslenska krónan dygði okkur ekki. Örmyntin okkar hentaði ekki lengur í ólgusjó alþjóðaefnahagsmála og saga hennar frá upphafi væri meira og minna ein samfelld hörmungarsaga. Þessu vilja margir gleyma núna þegar kollsteypan hefur sett allt úr skorðum og krónan vermir vissulega sumum til skamms tíma. Halda að ylurinn núna sanni ágæti hennar. Hætt er við að snöggkólni í fæturna þegar fram í sækir. Bitur reynsla fortíðar ætti að vera víti til varnaðar.

Að laga eða laga að

Strax og aðildarviðræður hófust fundu andstæðingar aðildar upp alveg nýtt þrætuepli, nýjan tittlingaskít. Allt í einu var skilgreining á eðli viðræðnanna orðið aðalatriðið. Aðlögun!, aðlögun! er nú hrópað á torgum. Ekki er einu orði minnst á það hvort þau lög og reglur sem Evrópusambandið notar eru betri eða verri en þær sem við notum. Ekkert dæmi er nefnt um að sambandið vilji þröngva upp á okkur afleitum reglum.

Kjarni máls er auðvitað sá, og það vita allir sem vilja vita, að fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið þá þarf það að laga sig að reglum þess, alveg eins og við gerum nú innan EES. Frá þessu verða frávik á einhverjum sviðum. Um það snúast samningarnir. Hvort við kjósum að laga okkar kerfi fyrirfram í einhverjum atriðum eða ekki er okkur í sjálfsvald sett en við verðum að gera grein fyrir hvernig við ætlum að gera það komi til aðildar. Kjósum við að bíða þar til ljóst verður hvort við göngum í ESB eða ekki kann það að tefja fyrir því að við njótum ávaxtanna af aðildinni.

Væri ekki nær að við ræddum, t.d. á sviði landbúnaðar, hvort núverandi kerfi þarfnist breytingar og hvort breytingin væri skynsamleg ein og sér, jafnvel þó hún fæli í sér að nýtt kerfi passaði við það sem ESB notar.

Ræðum frekar framtíðina

Óskandi er að gagnslausri umræðu um eðli viðræðnanna og um að draga umsóknina til baka linni og þess í stað snúum við bökum saman um góðan samning og ræðum um framtíðarhagsmuni Íslands.

MBL, 28.1.2001

Jón Steindór Valdimarsson

Höfundur er formaður Sterkara Íslands

AÐ FARA Í MANNINN!

04.01.2011 Höfundur: Andrés Pétursson Flokkar: Almennar greinar um ESB Engar athugasemdir

Þegar þungir og seinir knattspyrnumenn eiga ekki möguleika að ná boltanum af snjöllum spilara þá grípa þeir stundum til þess örþrifaráðs að tækla leikmanninn sjálfan.

Þetta þykir mjög ódrengilegt en nær þó stundum þeim árangri að stoppa sókn andstæðinganna.

Því miður virðist mér sumir Nei-sinnar í Evrópumálum vera farnir að beita þessari aðferð.

Í tengslum við hrókeringar innan utanríkisþjónustunnar hafa þeir gripið til þess ráðs að gefa í skyn að samningamenn Íslands hafi það eitt að markmiði að landa góðu starfi hjá Evrópusambandinu að loknu samningaferlinu.

Meira segja hefur einn forráðamaður Nei-sinna kastað fram þeirri tillögu að allir þeir sem að samningaviðræðunum koma skrifi undir yfirlýsingu að þeir muni ekki sækjast eftir embætti hjá ESB í ákveðið mörg ár eftir að samningaviðræðum lýkur.

Maður veit varla hvort maður á hlæja eða gráta að þessari tillögu.

Bæði vegur hún mjög að heiðarleika viðkomandi samningamanna og þar að auki skerðir hún atvinnufrelsi viðkomandi einstaklinga.

Einnig hljóta flestir að vera sammála að það sé mjög mikilvægt að við sendum okkar allra besta fólk til að standa vörð um okkar hagsmuni á alþjóðavettvangi.

Þeir sem best þekkja til þessara mála hljóta að vera þeir aðilar sem hafa staðið í samningaviðræðum eða komið að samningagerðinni að öðru leyti. Það væri því fáranlegt að ekki væri hægt að senda þetta fólk til starfa erlendis á okkar vegum.

Búast má við að umræðan um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu erði fyrirferðamikil á árinu 2011. Evrópusinnar hafa sett sér nokkur leiðarstef í umræðunni, meðal annars að beita staðreyndum og rökræðu, forðast gífuryrði og þrætubókarlist og vera upplýsandi. Við skorum því á alla sem taka þátt í umræðunni, hvort sem þeir eru hlynntir eða á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu, að halda umræðunni á þeim nótum.

Berjumst heiðarlega um boltann en tæklum ekki manninn á ruddalegan hátt!

FRBL,4.1.2011

Evrópusamtökin P.O. Box 30 121 Reykjavík evropa@evropa.is