Aðildarviðræðum hafnað: 105.339 Íslendingar sögðu JÁ
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur fyrir.
47,2% kjósenda studdu áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið en 52,8% voru andvíg. Við virðum lýðræðislega niðurstöðu þjóðarinnar, þótt við séum að sjálfsögðu vonsvikin.
Við teljum enn mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í evrópsku samstarfi. Þótt Ísland verði áfram utan ESB erum við nátengd Evrópu í gegnum EES, Schengen, NATO og fjölmörg önnur nauðsynleg samvinnuverkefni sem Ísland getur ekki verið án. Áhrif Evrópu á Ísland hverfa ekki.
Nærri helmingur þjóðarinnar kaus að halda áfram á evrópskri vegferð sem hefði þýtt stöðugra efnahagsumhverfi, meiri áhrif og sterkari stöðu Íslands meðal annarra lýðræðisríkja. Það skiptir miklu máli að sýna þeim 105.339 Íslendingum skilning og sjónarmiðum þeirra virðingu.
Við erum afar þakklát öllum sem lögðu hönd á plóg í baráttunni undanfarna mánuði. Grasrótarstarfið sýndi að Evrópuhugsjónin á Íslandi er sterk og lifandi.
Nú hefst nýr kafli. Evrópuhreyfingin mun áfram vinna að auknum tengslum Íslands við Evrópu, verja evrópska samvinnu og lýðræðisleg gildi og taka þátt í málefnalegri umræðu um framtíð Íslands og Evrópu