Framboð til stjórnar kynnt

Aðalfundur Evrópuhreyfingarinnar fer fram sunnudaginn 7. júní næstkomandi.
Eftirfarandi framboð eru fram komin, en framboðsfrestur rann út á miðnætti 1. júní.

Framboð til formanns

Magnús Árni Skjöld Magnússon

Eitt framboð hefur borist í embætti formanns, það er sitjandi formaður Magnús Árni Skjöld Magnússon, sem býður sig fram og er því sjálfkjörinn.

Magnús Árni Skjöld Magnússon er prófessor við Háskólann á Bifröst og Jean Monnet Chair. Hann er jafnframt formaður Evrópuhreyfingarinnar og hefur áratuga reynslu af Evrópusamstarfi, opinberri stjórnsýslu og stefnumótun. Hann hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegu fræðasamstarfi og verkefnum tengdum Evrópusambandinu, og leggur áherslu á faglega, málefnalega og framsýna nálgun í starfi stjórnar

 

Framboð til stjórnar - í stafrófsröð

Dóra Magnúsdóttir

Dóra starfar sem samskiptastjóri hjá Hafrannsóknastofnun og hefur víðfeðma reynslu af almannatengslum og markaðsmálum. Hún hefur verið Evrópusambandssinni frá því hún lærði land- og stjórnmálafræði í HÍ en síðar lagði hún stund á fjölmiðlafræði, viðskipta- og markaðsfræði í Danmörku og opinbera stjórnsýslu. Hún var virk í Já samtökunum, forvera Evrópuhreyfingarinnar og starfaði um hríð sem framkvæmdastjóri Evrópustofu, upplýsingastofu Evrópusambandsins á Íslandi. 

 

Elvar Örn Arason

„Ég býð mig fram í stjórn Evrópuhreyfingarinnar vegna þess að ég er sannfærður um að hagsmunum Íslands sé best borgið sem fullgildum þátttakanda í Evrópusamstarfinu.

Mikilvægar kosningar um áframhald aðildarviðræðna eru framundan og ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum í þeirri baráttu. Ég hef tekið virkan þátt í Evrópuumræðunni í meira en áratug. Sú vegferð hefur veitt mér víðtæka sýn á málaflokkinn:

  • Þekking á ferlinu og stuðningskerfum ESB: Ég starfaði tímabundið sem framkvæmdastjóri Já Íslands í fyrra aðildarferlinu og aðstoðaði Tollinn við að sækja um og sýsla með IPA-foraðildarstyrki ESB. Ég þekki því af eigin raun hvernig sambandið styður við íslenska innviði í aðildarviðræðum.

  • Sérþekking á stjórnsýslu: Sem formaður Félags stjórnsýslufræðinga leiddi ég málþing um áhrif viðræðnanna á íslenskar stofnanir og sveitarfélög. Niðurstaðan sýndi skýrt að aðildarferlið myndi styrkja íslenska stjórnsýslu og sveitarfélög sem virka þátttakendur á evrópska efnahagsvæðinu.

  • Daglegt starf með alþjóðasamninga: Ég starfa sem sérfræðingur hjá Skattinum á sviði fríverslunarsamninga og upprunamála, og tek þátt í starfi sérfræðinefndar EFTA um uppruna- og tollamálefni.

  • Menntun: Ég er með meistaragráður í stjórnsýslufræðum frá KU Leuven og í alþjóðasamskiptum frá Kent.

    Ég þekki ferlið, stjórnsýsluna og hvernig hagsmunum Íslands er best borgið á þessum vettvangi og vil beita kröftum mínum í stjórn Evrópuhreyfingarinnar til að tryggja að okkar rödd sé skýr og fagleg.

Ég hlakka til að vinna með ykkur öllum í baráttunni sem er framundan.

 

Engilbert Imsland

Engilbert er 59 ára framhaldsskólakennari og húsasmíðameistari. Hann starfar við kennslu,  byggingaeftirlit og smíðar. 

Engilbert er kvæntur og á tvö börn.

 

Helga Vala Helgadóttir

Helga Vala er lögmaður, leikkona og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.

 

Helgi Hrafn Gunnarsson

Helgi Hrafn er hugbúnaðarsmiður, tækniráðgjafi og fyrrverandi alþingismaður. 

 

Kristján B Ólafsson

Kristján hefur frá 2019 verið sérfræðingur hjá Framkvæmdasýslu Ríkisins og Ríkiseignum (FSRE), m.a. í auðlindamálum og í auðlindateymi FSRE. Hann var lengi sjálfstætt starfandi við rekstrar- og fjármálaráðgjafi og vann að fjölmörgum þróunarverkefnum í jarðhita og ferðamálum bæði hérlendis og erlendis.

 

Ólafur H. Ólafsson

Sæl verið þið, ég heiti Ólafur H. Ólafsson er 48 ára gamall þriggja barna faðir, er eins og er að jafna mig eftir kulnun og er því ekki eins og er á vinnumarkaði, ég á eftir örfáar einingar við nám mitt í Stjórnmálfræði við H.Í og mun útskrifast næsta vor.

Ég er búsettur á Selfossi og ég myndi stað setja sjálfan mig vinstra megin við miðju á hinum pólitíska ási, er þó eins og er utan flokka, var í Samfylkinguni og í Sósíalistaflokknum. Ætli ég ætti ekki samleið með Vinstrinu ( já það eru harðir ESB sinnar þar innan um), en kaus þó Samfylkinguna hér í Árborg í seinustu sveitastjórnarkosningum.

Jafnframt því að hjartað leiti til vinstri, þá er líka Gallharður ESB sinni og vil jafnvel meina að það sé ástæða þess að ég hafi þær lífskoðanir sem ég hef. Því fyrir mér þá er aðild að ESB, sú leið sem við verðum að fara, ekki bara vegna breyttrar og óstöðugar heimsmyndar. Ég tel einnig að okkur sé betur borgið innan stórar heildar og í samstarfi við þær þjóðir sem eru okkur mikilvægar á mörgum sviðum, svo sem eins og á sviðum viðskipta, efnahags, menningar, frjálsar búsetu og vinnuþátttöku. Svo ekki sé minnst á Óðaverðbólgu, mjög svo óstöðuga smámynt, fáránlega hátt verðlag á helstu neysluvörum og að venjulegu fólki sé nánast gert Ómögulegt að eignast eigið húsnæði, eða að vera á góðum og stöðugum leigumarkaði.

Þegar ég skoða grunn stoðir ESB sé ég Jafnrétti, bræðralag og samvinnu á lýðræðislegan hátt sett í broti fylkingar, þetta er fyrir mér hornsteinn þess að vera manneskja og það að til séu samtök sem stuðla opinberlega af samstafi þjóða, þétta hópinn í stað þess að sundra, byggja brýr í stað þess að rífa þær niður, eru mér svo sannarlega að skapi. Í mínum villtustu draumum um þá heimsmynd, sem mér fyndist að ætti að vera ríkjandi í heiminum, þá væri það sú heimsmynd að allar þjóðir heims gætu starfað innan samstarfssamtaka líkt og ESB er og Fyrir mér þá ríma þessi gildi bara ágætlega við mín lífsgildi og eru í raun í anda Sósíal Demokratískrar hugmyndafræðinnar, sem ég vil kenna mig við.

 

Páll Rafnar Þorsteinsson

Sérfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu og vinnur að stefnumótun um málefni gervigreindar. Kennir stjórnmálaheimspeki við Háskóla Íslands. Starfaði hjá Siðfræðistofnun HÍ, áður sem deildarforseti Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.

Þátttaka Íslands í evrópskri samvinnu hefur reynst okkur heilladrjúg og átt mestan þátt í efnahagslegum framförum og aukinni samkeppnishæfni undanfarna áratugi. Evrópusambandið stendur vörð um mikilvæg grundvallargildi, lýðræði, mannréttindi og frjáls viðskipti. Evrópusambandið er í dag jafnframt kyndilberi þeirrar lögbundnu skipunar heimsmála sem er í raun forsenda hagsældar á Íslandi sem fullvalda þjóðar. Það hefur aldrei verið mikilvægara fyrir okkur Íslendinga að taka okkur stöðu með vinaþjóðum í Evrópu en nú, á tímum mikilla umbrota í alþjóðastjórnmálum, þegar hernaðarlegum og viðskiptalegum aflsmunum er beitt til þess beygja þjóðir undir vilja stórvelda og þjóna hagsmunum alþjóðlegra stórfyrirtækja. Þess vegna er brýnt hagsmunamál fyrir Íslendinga að styrkja fullveldið með því að taka skrefið til fulls með aðild að ESB.

 

Sigurður H. Einarsson

Ég heiti Sigurður H. Einarsson vélstjóri/ vélvirki að mennt giftur, en samtals eigum við 6 börn og 10 barnabörn

Minn starfsvettvangur hefur verið til sjós og lands. Verið vélstjóri á togurum og bátum unnið í smiðjum við vélaupptektir og almennar skipaviðgerðir.

Einnig hef ég unnið í stóriðju sem vélstjóri.

Hef verið virkur í verkalýðsbaráttunni verið trúnaðarmaður á vinnustöðum, átt sæti í trúnaðarráði FIT,  en er núna félagsmaður í VM. félagi vélstjóra og málmtæknimanna. 

Ég býð mig fram til stjórnar Evrópuhreyfingarinnar vegna þess að ég tel að þessar kosningar vera einar þær mikilvægustu í sögu Íslenska lýðveldisins.

Ennfremur er ég þeirrar skoðunar að styrkleiki stjórnar hreyfingarinnar felist ekki síst í því að í stjórninni sé fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn.

Það virðist vera stefna í það að félagar mínir í ASI ætli að standa utan við þessa sjálfsögðu réttindi um að fá að ræða við ESB sem er alveg með ólíkindum. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að hóa saman félögum í verkalýðsfélögunum saman málstaði okkar til stuðnings. Því hér er gríðalegir hagsmunir fyrir íslensk heimili og mikið í húfi að þó ekki væri nema að fá að kíkja í pakkan.

 

Stefán Viktor Guðmundsson

 

Steinar Harðarson

Ég er Steinar Harðarson, bifreiðasmiður og  véltæknifræðingur menntaður í Svíþjóð.

Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hef þó búið víða, í Keflavík, Kópavogi, Malmö, Gautaborg, Kópaskeri og á Þórshöfn. En bý nú í Reykjavík. Ég hef fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu og hef gengt mörgum, mjög ólíkum störfum gegnum tíðina. Ég er óforbetranlegur áhugamaður um stjórnmál, hef tekið þátt í stjórnmálum frá unglingsárum.

Þátttaka í stjórnmálastarfi ásamt langri þátttöku í atvinnulífinu hefur sannfært mig um að full aðild að Evrópusambandinu sé rétt og gæfuríkt skref fyrir Ísland. Í mínum huga skipta viðskipti og fjárhagslegur ávinningur ekki öllu heldur einnig áherslan á mannréttindi, mannvirðingu, náttúruvernd, neytendarétt og félagslegt réttlæti. 

 

Thomas Möller

Thomas er verkfræðingur og leiðsögumaður. Hann er virkur pistlahöfundur á Eyjunni/DV og ákafur Evrópusinni.

 

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er framkvæmdarstjóri mannréttindasamtakanna Courage International AISBL og fyrrverandi þingmaður Pírata (2016-2024). Hún hefur brennandi áhuga á mannréttindum, réttarríkinu og lýðræði og því að þjóðin fái að segja hug sinn varðandi aðild að Evrópusambandinu.

Þórhildur Sunna er menntuð í þjóðarétti, Evrópurétti og alþjóðlegum refsirétti frá Háskólanum í Groningen og Utrecht háskóla og stundar nú nám í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Á meðan þingsetu hennar stóð gegndi hún embætti þingflokksformanns Pírata árin 2017-2019 og 2023-2024 og var formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 2019-2020. Þá átti Þórhildur sæti í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins árin 2017-2025 þar sem hún gegndi meðal annars stöðu formanns laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsins og undirnefndar hennar um gervigreind og mannréttindi.


Next
Next

Aðalfundur 7. júní