20% verktakaverkefni · Sveigjanlegt og hentar með námi
Hefur þú áhuga á Evrópumálum, góð tök á skrifum og gaman af því að skipuleggja? Evrópuhreyfingin á Íslandi leitar að sjálfstæðum og skipulögðum verkefnastjóra til að sinna upplýsingagjöf, fundahaldi, uppfærslu vefsíðu og reglulegum verkefnum félagsins. Um er að ræða verktakaverkefni til sex mánaða, ekki launað starf. Æskilegt er að verkefnið hefjist sem fyrst.
Um Evrópuhreyfinguna
Evrópuhreyfingin á Íslandi er félag sem stuðlar að upplýstri umræðu um Evrópumál. Frekari upplýsingar um starfsemi hreyfingarinnar er að finna á evropa.is.
Helstu verkefni
Gerð og útsending fréttabréfs til félagsmanna einu sinni til tvisvar í mánuði.
Fundarboð, skráningar, undirbúningur viðburða og eftirfylgni.
Umsjón með félagaskrá og einfaldar uppfærslur á vef hreyfingarinnar og samfélagsmiðlum hennar.
Aðstoð við formann og stjórn, auk samskipta við European Movement International og aðra samstarfsaðila hreyfingarinnar.
Hverjum leitum við að?
Við leitum að einstaklingi með góða íslensku- og enskukunnáttu, ritfærni og góða tölvu- og samfélagsmiðlafærni. Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, áreiðanleiki og góð samskiptahæfni skipta miklu máli.
Nám í stjórnmálafræði, alþjóðasamskiptum, Evrópufræðum, samskiptafræði eða skyldum greinum er kostur, og einnig reynsla af félagsstarfi, viðburðahaldi, fréttabréfum eða vefumsjón. Ekki er gerð krafa um háskólapróf eða fyrri reynslu af sambærilegu starfi.
Umfang og fyrirkomulag
Um er að ræða sjálfstætt verktakaverkefni til sex mánaða með möguleika á framlengingu að loknu mati. Umfang samsvarar um átta klukkustundum á viku, eða samtals einum vinnudegi. Vinnan fer að mestu fram í fjarvinnu og vinnutími er sveigjanlegur eftir verkefnum og viðburðum.
Miðað við 8 tíma á viku má gera ráð fyrir þóknun upp á ca. 120.000 kr. á mánuði. Verktaki ber sjálfur ábyrgð á skattskilum og öðrum gjöldum sem tengjast verktöku.
Verkefnastjóri vinnur í samráði við formann og stjórn. Stjórn ber ábyrgð á stefnumótun og pólitísku fyrirsvari, og verkefnastjóri kemur ekki fram opinberlega fyrir hönd hreyfingarinnar í pólitískum málum.
Umsóknir og upplýsingar
Sendu stutta kynningu á þér og áhuga þínum á verkefninu ásamt ferilskrá til formanns hreyfingarinnar, Magnúsar Árna Skjöld Magnússonar, á magnus@evropa.is. Hann veitir jafnframt nánari upplýsingar.
Umsóknir verða skoðaðar jafnóðum og gengið verður frá samstarfssamningi þegar hentugur einstaklingur hefur fundist. Umsóknarfrestur er þar til ráðið hefur verið í verkefnið.
Persónuupplýsingar umsækjenda eru aðeins notaðar vegna þessa verkefnis og þeim er eytt að ráðningu lokinni.