Þér er boðið um borð í kosningabaráttuna!

8. mars 2026

Níunda fréttabréf Evrópuhreyfingarinnar

Knýjum fram JÁ

Kæru félagar, til hamingju!

Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvað undangengin vika var stór áfangi fyrir okkur. Markmið Evrópuhreyfingarinnar hefur alltaf verið að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Nú hefur ríkisstjórnin, öllum að óvörum, boðað til þeirra kosninga fyrr en áætlað var eða 29. ágúst næstkomandi. Hvílíkur sumarauki!

Þetta þýðir að við þurfum að safna liði og þið, félegar í hreyfingunni, eruð okkar lið. Við sjáum það í könnunum að fólk á landsbyggðunum hefur meiri fyrirvara við aðildarviðræður, jafnvel þó innganga í ESB myndi styrkja innviði okkar, samgöngur og styðja sérstaklega við bændur. Við þurfum því að safna okkar fólki í smærri bæjum hringinn í kringum landið og hjálpast að við að sannfæra þjóðina um að sterkt Já síðsumars er eina leiðin til að vita hvað okkur býðst í samningum við ESB. Baráttan vinnst augliti til auglitis. Það má óhikað segja Já núna og hugsa svo málið betur þegar samningur liggur fyrir. Atkvæðagreiðslan er einstakt tækifæri fyrir þjóðina til að taka lýðræðislega ákvörðun um framtíð sína og óþekkt innan Evrópu.

Nýtum tækifærið vel!

Utanríkisráðherra í Meginlandinu


Nýr þáttur af Meginlandinu lenti á hlaðvarpsveitum í morgun. Utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, er gestur þáttarins og er ómyrk í máli um atkvæðagreiðsluna sem nú fer í hönd. Hún hefur áhyggjur af erlendum afskiptum, upplýsingaóreiðu og rússneskum bottum en sér, eins og við, að tækifærið til að sækja um aðild að ESB er núna. Okkur þætti vænt um að þið deilduð þættinum að hlustun lokinni.

 

Greinar félaga

Eins og venjulega eru stjórnarmenn og aðrir félagar í Evrópuhreyfingunni öflugir í greinarskrifum um sambandið. Hér eru helstu greinar síðustu tveggja vikna sem eru góðar með morgunbollanum. Þær fjalla um kreddur í kringum ESB, veikar varnir andstæðinga framtíðarinnar, skynsemina að baki því að kíkja í pakkann og hvaða þjóðfélagshópar myndu hagnast mest á inngöngu í ESB.

 

Þangað til næst, framtíðarkveðjur!

Next
Next

Skotar vilja snúa Brexit við