Skotar vilja snúa Brexit við

Mikill meirihluti Skota, eða 73 prósent, segjast í nýrri könnun vilja snúa Brexit við nú þegar áratugur er liðinn frá einni afdrifaríkustu ákvörðun Breta.

Skoska Evrópuhreyfingin EMiS hefur, af þessu tilefni, hafið markaðsherferð fyrir komandi þingkosningar í Skotlandi undir slagorðinu „Vote for what Scotland wants.“ Með því vill skoska Evrópuhreyfingin koma Evrópumálunum á dagskrá þegar hiti færist í stjórnmálaumræðuna þar í landi en kosið verður til þingsins 7. maí næstkomandi.

„Fólkið vill snúa Brexit við,“ segir David Clarke formaður EMiS. „Kjósendur og fjölmiðlar ættu að kanna afstöðu stjórnmálaflokkanna gagnvart Brexit. Efnahagslega tjón þess er óumdeilanlegt og það hefur komið þjóðinni í lægð sem bitnar hvað verst á ungu fólki.“

Könnunin leiddi í ljós að 73% af kjósendum verkamannaflokksins, 88% af kjósendum SNP, 70% af kjósendum Frjálslyndra Demókrata og 89% kjósenda græningja vilja ganga til liðs við ESB á ný.

80% af Skotum undir 35 ára vilja ganga inn í Evrópusambandið aftur.

Next
Next

Varnir Íslands og forvitnilegar kannanir