Framtíðin: Hvílíkir tímar!
25. janúar 2026
Sjötta fréttabréf Evrópuhreyfingarinnar
Grænland er í 290km fjarlægð
Kæru félagar
Er okkur óhætt að draga andann núna? Það er engu líkara en jörðin hafi snúist á tvöföldum hraða síðan síðasta fréttabréf Framtíðarinnar kom ylvolgt í pósthólf ykkar. Svo mikið vatn hefur runnið til sjávar.
Það þarf hvorki að hafa mörg orð um landtökudraumóra Bandaríkjaforseta, né að stikla á öllum þeim snúningum sem urðu á því máli undanfarnar tvær vikur. Stjórn Evrópuhreyfingarinnar sendi hins vegar frá sér ályktun um málið á þingheim allan, ráðherra og fjölmiðla.
Efnahagsmálin í Meginlandinu
Gylfi Magnússon prófessor og fyrrverandi viðskipta- og efnahagsráðherra er gestur þeirra Helgu Völu og Páls Rafnar í nýjasta þætti Meginlandsins. Þau fóru ítarlega yfir tollamál Íslands, samkeppnisgrundvöll á íslenskum markaði og hvað það hefði í för með sér að ganga inn í ESB og taka upp evru.
Stór tíðindi úr stjórnarráðinu
Það fóru ekki fram hjá okkur tíðindin í stjórnarráðinu. Nú er ljóst að Evrópuumræðan er hafin og þar með kosningabaráttan. Við vonum innilega að þjóðin fái að segja sitt áður en langt um líður. Við erum tilbúin!
Formaður í hlaðvarpi
Magnús Árni Skjöld Magnússon formaður Evrópuhreyfingarinnar fór í langt og ítarlegt viðtal í hlaðvarpi Eyjunnar á dögunum. Þar kvaddi hann undanþágu umræðuna í kútinn og benti réttilega á að öll aðildarríki ESB hafi fengið varanlegar sérlausnir um sína grundvallarhagsmuni. Eins myndi fara um Ísland. Við hvetjum ykkur til að hlusta á hlaðvarpið.
Greinar félaga
Félagar okkar voru heldur betur öflugir í greinaskrifum síðustu tvær vikur. María Malmquist reið á vaðið með grein um ungt fólk og Evrópusambandið, Thomas Möller fylgdi þar á eftir um svartagallsraus andstæðinga ESB og þá tóku þeir Magnús og Kristján við keflinu um ástandið í Grænlandi og um samstarf Íslands við Bandaríkin.
Þangað til næst, framtíðarkveðjur!